mars 31, 2003

Kort af Írak

Fyrir þá sem vilja skoða kort af Írak er alveg ógrynni af þeim hér. Merkilegt nokk að þetta er Bókasafn Texas-háskóla sem hefur sankað þessu saman. Fullt af áhugaverðum kortum þarna.
Posted by Agust at 11:14 EH | Comments (0)

mars 30, 2003

Andvarp!

Í tölfræði ei slingur telst
og tómur er hjá mér kofinn.
Í formúlunum eitthvað felst,
svo fúll ég verð og dofinn.
Posted by Agust at 01:50 FH

mars 27, 2003

Fréttamannafundur í Camp David

Það var athyglisvert að fylgjast með fréttamannafundi B&B í Camp David áðan.
Þar sá maður muninn á Bush og Blair þegar kemur að því að svara fyrir stríðið. Annar svaraði í 5 orða setningum, sem hann endurtók a.m.k. tvisvar sinnum og talaði einsog hann væri með enskukennslu í sjónvarpinu "ee-vil peo-ple". Hinn svaraði spurningum fréttamannanna.

Nú eru fréttaskýrendur að velta svörum Tonys Blair fyrir sér. Minna er talað um enskukennsluna.
Posted by Agust at 04:08 EH | Comments (0)

Rachel Corrie

Mjög grafísk lýsing (og óhugnaleg mynd) af láti Rakelar Corrie, sem lést er ísraelsk (her)jarðýta ók yfir hana. Vitnað er í tölvupóst sem hún sendi stuttu áður.
"I am amazed at [my Palestinian friends'] strength in being able to defend such a large degree of their humanity – laughter, generosity, family-time - against the incredible horror occurring in their lives and against the constant presence of death. I am also discovering a strength and basic ability for humans to remain human in the direst of circumstances. I think the word is dignity. [...] – February 28
Sjá: frétt METimes
Posted by Agust at 03:21 EH

Mannfall

Skv. þessum lista hjá Jordan Times hafa 175 íraskir borgarar fallið í kjölfar innrásarinnar í landið. Engar trúverðugar upplýsingar hafa fengist um fall íraskra hermanna. 22 Bandaríkjamenn hafa fallið og 20 Bretar, auk tveggja sem er saknað úr herjum beggja aðila. Auk þess hafa fimm Jórdanir og fimm Sýrlendingar fallið í Írak.

Annars er það að frétta af "frelsuninni" að nýjustu fréttir herma að matvæladreifingin, þar sem hún er byrjuð, sé bara engan veginn að ganga, menn nota orð á borð við disaster: Convoy hijacked in aid 'disaster':
Posted by Agust at 11:54 FH

Svína- og kjúklingaskítur stuðlar að aukinni þorskgengd

Ekki á hverjum degi sem maður sér fyrirsögn á borð við þessa.
Posted by Agust at 11:18 FH

Afstaða Írana til innrásarinnar í Írak

MEMRI var að senda frá sér ágæta úttekt á afstöðu Írana til innrásarinnar í Írak.
Athyglisverð lesning fyrir áhugasama.
Posted by Agust at 12:13 FH

mars 26, 2003

Hólmsteinn ex Machina

Í morgun á leið í skólann heyrði ég í átta-fréttunum um einhvern fund sem rithöfundar héldu um andlegt frelsi sitt. Þar töluðu m.a. Ragnar Aðalsteinsson og Hallgrímur Helgason.
Hallgrímur kom eitthvað inn á kenningu sína um "bláu höndina". Þegar hann hafði lokið máli sínu skaut Hannes Hólmsteinn Gissurarson og flutti Sálminn um Davíð.
Nú veit ég ekki hvort Hallgrímur hefur vitað af Hannesi en mér finnst það mjög fyndin tilhugsun ef Hannes hefur bara poppað þarna upp úr áhorfendahópnum.
Þetta er allavega mjög kómískt einsog maður sér þetta fyrir sér.... sannkallaður Hólmsteinn ex Machina.
Posted by Agust at 11:54 EH | Comments (0)

Rúv fær hrós

Rúv fær hrós fyrir að hafa banner á skjánum hjá sér þegar fréttir eru sagðar frá Írak sem segir "Innrás í Írak". Það er algjört rangnefni að tala um "stríð" í Írak. Stríð lúta ákveðnum leikreglum. Fyrir 12 árum gerðu Írakar innrás í Kúveit og í kjölfarið var Persaflóastríðið háð, það var stríð.
Þetta er aðeins byggt á mínum skilningi á þessum hugtökum. Ég hef talað um innrás í þessari umræðu, ekki stríð. Ég legg til að aðrir geri hið sama.
Að sjálfsögðu hafa skoðanir mínar á innrásinni áhrif á mína orðanotkun. Stríð hljómar miklu "betur" en innrás og því í sjálfu sér eðlilegt að Bandaríkjamenn tali um war en ekki invasion.
Posted by Agust at 06:23 EH

Stríðsfangar

BBC hefur verið með ágæta umfjöllun um málefni stríðfanga. Í grein á BBC-vefnum, When are pictures of POWs propaganda?, er vitnað í breskan flugmann sem var í haldi Íraka fyrir 12 árum.
Although such images may be demoralising for the public back home, at least the families know their loved ones are still alive. "My family drew strange comfort from the fact that, even though I was in Iraqi hands, they knew I had survived the missile attack on my Tornado," Mr Nichol has said.
Ég skrifaði um málefni réttindalausu fanganna á Guantanamo fyrir rúmu ári síðan. Enn eru um 650 fangar þar og lúta sjálfsettum reglum hers þess lands sem vill kalla sig voldugasta lýðræðisríki heims.
Posted by Agust at 12:49 EH

mars 25, 2003

Nýjustu fréttir frá Mið-Afríku lýðveldinu

Einsog Sverrir Jakobsson er búinn að benda á, þá er það helst að frétta frá Mið-Afríku lýðveldinu að nýr forsætisráðherra, Abel Goumba, hefur verið settur í embætti.
Menn eru ekkert að leita að nýjum mönnum frekar en fyrri daginn í M-A.L. - Goumba var forsætisráðherra í einn mánuð 1959 en '57-'58 var hann fyrst varaforseti og svo líka forseti "ríkisráðsins" (Government Council). Hann hefur verið leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Front Patriotique pour le Progrès. Hann er 76 ára.
Bozize foringi uppreisnarmannanna telst forseti frá 15. mars skv. mínum heimildum.
Hér má lesa ýmislegt um M-A.L.
Posted by Agust at 09:43 EH | Comments (0)

A Readers' Guide to the War

Nicholas Kristof er núna staddur í Kúveit. Hann skrifar góðan pistil í NYT í dag.
Instead, quite predictably, we're now besieging Basra, where one million people have been without electricity and clean water since Thursday — a deprivation that's likely to make them more hostile to U.S. occupation.

We have such firepower that we can win the war without sensitivity to Iraqis, but we can't survive the occupation that way. Raising the American flag on Iraqi territory the other day was the best boost we could have given Saddam. And Arabs flinch each time American officials torture pronunciations of the names of Iraqi cities and, worse, the country itself. Granted, proper Arabic pronunciation of "Iraq" is difficult because it actually begins with a consonant, the ayn, that doesn't exist in English and sounds like a person being strangled.
Ég var áðan að skrifa tölvupóst þar sem ég tilgreindi þrettán atriði sem veigamikil rök gegn þessari innrás. Veit ekki hvort ég birti þau skrif hérna. Þarf þá aðeins að lesa það betur yfir áður en ég varpa því á internetið.

Einsog Einar Sús var búinn að benda á, þá er grein eftir Paul Krugman í NYT (Channels of Influence) þar sem hann segir frá því hvernig útvarpsfyrirtækið Clear Channel Communications notar 1.200 útvarpsstöðvar í sinni eigu til að reka áróður fyrir innrásinni í Írak. Sömu stöðvum er einnig beitt gegn þeim sem eru andvígir innrásinni, einsog t.d. Dixie Chicks hafa fengið að kynnast, sem voru teknar út af playlista stöðvanna fyrir andstöðu sína.
Posted by Agust at 07:30 EH

Basra

Nú hafa bandamenn gefist upp á að frelsa Basra og ætla bara að sprengja hana í loft upp í staðinn.
Munurinn er víst að hið fyrrnefnda er tímafrekari útgáfa af hinu síðarnefnda. Menn nenna þessu dúttli ekki lengur. Opinbera ástæðan fyrir þessari stefnubreytingu, að skilgreina Basra sem "lögmætt stríðssvæði", er að skaffa íbúunum vatn. Hvað ætli gerist þegar þeir fara að skaffa íbúunum mat líka?

Viðbót: Basra: Why they are not cheering, ágætis útlistun í styttra lagi eftir Paul Reynolds hjá BBC.
Posted by Agust at 09:15 FH

mars 24, 2003

Stríðsfangar

Það var alveg með ólíkindum að hlusta á Rumsfeld (og Tommy Frank) í dag tala um meðferð Íraka á stríðsföngum. Hvernig á maður að taka mark á mönnum sem bera ábyrgð á Guantanamo.
Posted by Agust at 06:35 EH

mars 23, 2003

Hamfarir

Platan Hamfarir eftir Gunnar Jökul þótti aðhlátursefni þegar hún kom út. Verk manns sem gekk ekki heill til skógar. Hann taldi heimsfrægðina á næsta leiti en fólk hló og gerði grín að sköpun hans.
Ég hló líka. Reyndar man ég bara eftir viðtalinu við hann hjá Eiríki Jónssyni ('94 eða '95) en ég heyrði ekki plötuna sjálfa fyrr en í 4. bekk í Verzló, þegar Beggi Reynis spilaði hana fyrir mig í einhverri verkefnavinnu. Ég hló, þetta var fyndið.
Það var samt eitthvað í einlægninni, svona þegar maður fór að hlusta á tónlistina fordómalaust, þessari miklu einlægni sem var lögð í þetta verk. Þegar maður hlustar á tónlistina og lítur fram hjá því að allt undirspil er á hljómborð - en þó kannski að hluta til einmitt vegna þess, vegna þeirrar bágru aðstæðna sem platan er unnin við - þá getur maður ekki annað en hrifist með.
Það er fínt að hlusta á þessa tónlist með skólabókunum meðan rigningin hamast fyrir utan. Ekki úr vegi að vitna að lokum í Gunnar Jökul (úr laginu "Einskis virði").
Ég geri sem ég vil
og allt sem langar til
þá orðinn einvers virði

En ég er einhvers virði
og finnst mér öllu geta um það breytt
og ef ég bara þyrði
því núna er ég ekki lengur neitt
(src)

Texta plötunnar má finna hér.
Posted by Agust at 10:48 EH | Comments (0)

mars 22, 2003

Galdra-blogg?

Skv. frétt Mbl er sá sem kennir kúrsinn í Háskóla Íslands um blogg vorið 2004 Matthías Viðar Sæmundsson. Hann hefur verið þekktastur fyrir að vera sérfróður um galdra á Íslandi fram að þessu (einsog sjá má á heimasíðu hans). Eftir því sem ég kemst næst bloggar Matthías Viðar ekki en var/er ritstjóri Kistan.is (src).
Ég held að maður verði að smygla sér inn á fyrirlestra hjá honum næsta vor, svona fyrir forvitnissakir. Hinn sjálfhverfi ég finnst einsog þarna sé verið að grufla í einhverju sem ég er hluti af/á hluta í.
Posted by Agust at 06:06 EH

Fréttaflutningur frá Írak

Vitið þið hvernig maður veit hvort maður er að horfa á bandaríska fréttastöð eða ekki?

Það vantar kvikmyndatónlistina undir myndunum á hinum stöðvunum ;-)
Posted by Agust at 11:58 FH

mars 21, 2003

Athyglisvert

Athyglisvert
Hef ekki heyrt þetta seinna áður, athyglisvert.
As one savvy official observed, occupying Baghdad comes at an "unpardonable expense in terms of money, lives lost and ruined regional relationships." Another expert put it this way: "We should not march into Baghdad. . . . To occupy Iraq would instantly shatter our coalition, turning the whole Arab world against us, and make a broken tyrant into a latter-day Arab hero . . . assigning young soldiers to a fruitless hunt for a securely entrenched dictator and condemning them to fight in what would be an unwinnable urban guerrilla war. It could only plunge that part of the world into even greater instability."

Those comments may overemphasize the risks, but they are from top-notch analysts whose judgments I respect. The first comment was made by Colin Powell in a Foreign Affairs essay in 1992; the second is in "A World Transformed," a 1998 book by the first President Bush.
Sjá: Losses, Before Bullets Fly (Nicholas Kristof)

Nicholas Kristof hefur ferðast um Tyrkneska Kúrdistan undanfarna daga:
Hatreds Steeped in Blood (11/3)
Torture, Beyond Saddam (14/3)
Cassandra Speaks (18/3)
Í síðasta pistlinum reynir Kristof að draga lærdóm af sögunni, Tróju-stríðinu. Hef ekki áður heyrt þessa sögulegu skýrskotun, sem er nokkuð skemmtileg.
Posted by Agust at 01:07 FH

The philosophical gulf between 41's gulf war and 43's gulf war

Maureen Dowd er þekkt fyrir kaldhæðni í pistlum sínum. Hún þarf hinsvegar ekkert að vera kaldhæðin þegar hún ber saman Persaflóastíð 41. og 43. forseta Bandaríkjanna. Staðreyndirnar eru nægilega kaldhæðnar sjálfar.
Sjá: The Perpendicular Pronoun

Ég mæli líka með lestri á nýjasta pistli Tómasar Friedman. Þar rekur hann í stuttu máli hvers vegna hann styður stríð gegn Saddam Hussein, en getur ekki skrifað undir þessa aðferðafræði.
President Bush is fond of cowboy imagery, so here's an image that comes to mind about our pending war with Iraq. In most cowboy movies the good guys round up a posse before they ride into town and take on the black hats. We're doing just the opposite. We're riding into Baghdad pretty much alone and hoping to round up a posse after we get there. I hope we do, because it may be the only way we can get out with ourselves, and the town, in one piece.
Svo rekur hann í stuttu máli hvernig þessi innrás sem Bandaríkjamenn eru að er gerð án þess að fullreynt hafi verið á diplómatíska lausn. Hann minnir m.a. á að síðast hittustu utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Íraks í Genf áður en innrás var gerð. Innrásin er gerð á röngum forsendur og það sem jafnvel verra er, "þjóðaruppbyggingin" sem þrarf að eiga sér stað í kjölfarið er líklegri til að mistakast, þar sem þetta er nánst sóló aðgerð Bandaríkjamanna (og Breta).
This column has argued throughout this debate that removing Saddam Hussein and helping Iraq replace his regime with a decent, accountable government that can serve as a model in the Middle East is worth doing [...]
such a preventive war is so unprecedented and mammoth a task — taking over an entire country from a standing start and rebuilding it — that it had to be done with maximum U.N legitimacy and with as many allies as possible.
Sjá: D-Day
Posted by Agust at 12:52 FH

Hentugur misskilningur

Polls show that the public is terribly confused about what's going on, so much so that some 40 percent believe that Saddam Hussein was personally involved in the Sept. 11 attacks. That's really scary. Rather than correct this misconception, the administration has gone out of its way to reinforce it.
- Bob Herbert í Ready for the Peace? í New York Times.
Posted by Agust at 12:37 FH

mars 20, 2003

Franskar kartöflur

Áðan varð mér það á að horfa á Jay Leno. Reyndar hló ég að einum brandara sem hann sagði í mónóloggnum, sem gerist ekki oft: Bandaríkjamenn nota seli og höfrunga til njósna og sprengjuleitar. You know you have no allies, when you have to turn to other species!
Í "Jay Walk" var fólk ekki sammála hvort Írland væri í Miðjarðarhafinu, Kyrrahafinu eða landlukið (og nágrannarnir eru? -Evrópa!).
Hvað um það, Bill O'Reilly frá Fox-stöðinni kom til Lenos og kallaði á alla Ameríkana að sniðganga franskar vörur (hér má lesa transcript af viðtali sem hann tók við franskan blaðamann og gefur til kynna hver málflutningur hans er). Annað sem hann kom inn á var að Bandaríkin hefðu bjargað Frökkum og ef það hefði ekki verið fyrir okkur þá væru þýska töluð í Frakklandi í dag og allir væru á Volkswagen.

Hvað um það, ég rakst á þessa síðu á netinu (í gegnum Kristján og Stellu), Belgianfries.com, þar sem segir m.a.:
In fact, the explanation is quite simple: in English, 'to french' means (or at least meant) 'to cut into lengthwise pieces'. You probably know 'frenched beans'. So logically, French Fries is short for 'frenched and fried potatoes'. In fact, the English call them 'chips', a word which has a similar meaning (a chipped piece of wood). (scr)
Ég verð samt að segja, talandi um að sniðganga vörur, að ég veit um fá uppátæki til "mótmæla" vitlausari en einmitt að sniðganga vörur frá hinni eða þessari þjóðinni. Ég skal eyða fleiri orðum í það við betra tækifæri.

Nú rétt í þessu var fréttaskýrandi að tala um það á BBCWorld hvað bandamenn Bandaríkjamanna væru litlar þungavigtarþjóðir, að ÍSLAND væri meðal þessara ríkja, land sem hefur ekki einu sinni sinn eigin her!!
Posted by Agust at 11:59 EH

Ég er friðarsinni. Þarf ég að segja fleira?
Posted by Agust at 05:39 EH

Fríverslunarsamningar EFTA

Í nýjasta eintaki Stikla, vefrits viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir frá því að samkomulag hafi náðst milli Egypta og EFTA um viðskipti. Egyptar höfðu fram að þessu neitað að opna markaði sína fyrir fisk en í samningnum, sem gert er ráð fyrir að ljúka við fyrir áramót, náðist samkomulag um fisksölu til Egypta, en á móti þurftu EFTA-löndin að slaka á hindrunum með innflutning á landbúnaðarvörum frá Egyptalandi.
Á síðasta ári var seldur fiskur til Egyptalands frá Íslandi fyrir tæpar 50 milljónir en flutt inn frá Egyptalandi vörur fyrir 21 milljón.

Fyrir hafa fríverslunarsamningar verið gerðir við Ísrael, Palestínu (PA), Jórdaníu, Tyrkland og Marokkó. Eistrasaltsríkin þrjú, Pólland, Tékkland, Slóvakíu, Ungverjaland, Slóveníu, Króatíu, Búlgaríu, Rúmeníu og Makedóníu af gömlu Austantjaldslöndunum. Auk þess eru fríverslunarsamningar við Mexíkó (frá 2001) og Singapore (frá upphafi ársins í ár).
Þá hafa verið gerðar yfirlýsingar, "Declarations on Co-operation", við nokkur ríki: Alsír, Egyptaland (sem nú er verið að gera fríverslunarsamning við), GCC (Bahrein, Kúveit, Khatar, UAE, Óman og Saúdí-Arabía), Líbanon, Túnis, MERCOSUR-löndin (Brasilía, Uruguay, Paraguay og Argentína), Albaníu, Serbía og Svartfjallaland og Úkraínu.
Posted by Agust at 04:24 EH

mars 19, 2003

Nationalismi og ESB

Á fimmtudaginn fyrir tæpri viku fór ég á málþing um "Þjóðernishyggja, sambandsríkjastefnan og Evrópusambandið", þar sem Brendan O'Leary flutti gott erindi.
Þar sem ég sá að heil síða í Mogganum fór í viðtal við hann á laugardaginn, þá held ég að ég sé ekkert að reyna að endursegja það sem þarna kom fram. Það sem kom hinsvegar fram í örstuttu máli var að ESB sem "Bandaríki Evrópu" er ekki að ganga upp, nokkuð sem flestir raunsæir menn sjá og skilja.
Kenning hans um "herraþjóð" voru athyglisverðar og hægt að færa mjög góð rök fyrir henni, því miður.
Skemmtilegur fundur og nýttist nokkuð að hafa lesið Íslenska þjóðríkið e. Guðmund Hálfdánarson. Þar eru miklar pælingar um þjóðir og fleira sem þarna var rætt.
Reyndar kláraði ég aldrei Íslenska þjóðríkið alveg, þyrfti að klára hana einhvern daginn - ekki það að bókastaflinn sem ég á eftir að lesa telur líklegast núna einar 10-15 bækur! Ég er mjög duglegur að sanka að mér bókum, bæði kaupi ég alltof mikið af þeim og tek allar áhugaverðar bækur sem ég rekst á á bókasafninu (og safna svo sektum á þær þegar ég kemst ekki yfir að lesa þær). Spurning um að reyna að skipuleggja sig aðeins betur til að koma því í verk að lesa eitthvað af þessu.
Posted by Agust at 02:56 EH

Skólabókardæmi um afrískt valdarán

Á BBC-vefnum er valdaránið í Mið-Afríku lýðveldinu kallað skólabókardæmi um afrískt valdarán.
Í sömu fréttaskýringu kemur m.a. fram að landið var nýlega að ganga í gegnum ferli til að fá lán hjá IMF/Alþjóðabankinn, sem hefði borgað opinberum starfsmönnum og hermönnum.
Talið er að það muni skapa mikla ólgu ef sannast að Tsjad (Chad) hafi bakkað upp uppreisnarmennina. Á götum Bangui, höfuðborgar Mið-Afríku lýðveldisins, hafa sést arabískutalandi (Tsjaddar) og hefur það skapað töluverða tortryggni.
Posted by Agust at 07:37 FH

mars 18, 2003

Woody Allen

Vildi bara minna á heimildarmynd um Woody Allen (Woody Allen: A Life in Film) í kvöld á RÚV kl. 23:10.

Hún verður endursýnd eftir hádegi á sunnudaginn fyrir þá sem missa af henni í kvöld. Ég er ánægður með margar af þessum sem RÚV hefur verið að sýna undanfarnar vikur, sérstaklega að þær skuli síðan vera endursýndar fyrir þá sem missa af þeim. Endursýningar eru af hinu góða, sparar manni oft stress með tæmerinn í vídjóinu.
Posted by Agust at 09:16 EH

48h

Jæja, 48 stundir (46?) í innrás.
Að tilkynna svona lagað á degi heilags Patreks, fussusvei!

Skotinn Robin Cook hlýtur að vera stjarna dagsins, ræðan sem hann flutti í þinginu í dag var áhrifrík. Hann er einn af þessum stjórnmálamönnum sem maður sveiflaðist á milli þess að elska eða hata þegar hann var utanríkisráðherra, en nú er hann vissulega í náðinni.
Posted by Agust at 02:32 FH

mars 17, 2003

Fleiri fréttir

Það er fleira í fréttum en að innrás inn í Írak sé væntanleg í vikunni.

Valdaránið í Mið-Afríku lýðveldinu er gagnrýnt af Sambandi Afríkuríkja (á BBC-vefnum er prófíll fyrir Bozize sem stendur á bak við uppreisnina).

Palestínska þingið felldi tillögu Arafats um forsætisráðherra, 49 á móti 22. Tillagan hefði haldið meiri völdum hjá forsetanum (Arafat). Eftir sem áður hefur forsetinn (Arafat) vald yfir öryggissveitunum, getur skipað og rekið forsætisráðherrann og hefur lokaorðið um samninga við Ísrael. Forsætisráðherrann (Abbas/Abu Mazen) hefur innanríkismál á sinni könnu. Abbas vill ekki taka við djobbinu fyrr en skýrt er hvert vald hans verður.

Vinir og samverkafólk syrgja Rachel Corrie, bandaríski friðarsinninn sem lést í aðgerðum Ísraelshers, þegar hún reyndi að verja palestínska borgara og eigur þeirra (líkt og nokkrir Íslendingar hafa gert undanfarið). Minnir mann á, á sama tíma og Bandaríkin eru hötuð í Arabaheiminum, að þjóðir eru aðeins stór hópur einstaklinga, sem allir hafa sjálfstæðar skoðanir, viðhorf og lifa sjálfstæðu lífi.

Og svo fréttin sem mér finnst einna sérstökust: Hans Adam af Lúxemborg fær aukin völd.
Posted by Agust at 06:47 EH

Skoðanakönnun meðal Araba

Ég var að heyra í fréttakynningunni á Ríkisútvarpinu að m.a. verði fjallað um nýlega könnun sem gerð var í nokkrum Arabalöndum.
Mér var bent á hana fyrir helgi og ekki úr vegi að vísa á hana á heimasíðu Maryland-háskóla.
Posted by Agust at 05:08 EH

mars 16, 2003

Friedman

Kominn tími á nokkra Friedman-pistla:
Fire, Ready, Aim:
Again, for a war of no choice against the 9/11 terrorists in Kabul, we didn't need anyone's permission. But for a war of choice in Iraq, we need the world's permission — because of what it would take to rebuild Iraq.
Grapes of Wrath:
...fly to Paris, bring the leaders of France, Russia, China and Britain together, along with the chairman of the Arab League summit, and offer them any reasonable amount of time for more inspections — if they will agree on specific disarmament benchmarks Saddam has to meet and support an automatic U.N. authorization of force if he doesn't. If France still snubs you, the world will see that you are the one trying to preserve collective security, while France only wants to make mischief.
Repairing the World:
Some days, you pick up the newspaper and you don't know whether to laugh or cry. Let's see, the prime minister of Serbia just got shot, and if that doesn't seem like a bad omen then you missed the class on World War I. Our strongest ally for war in Iraq is Bulgaria — a country I've always had a soft spot for, because it protected its Jews during World War II, but a country that's been on the losing side of every war in the last 100 years. Congress is renaming French fries "freedom fries." George Bush has managed to lose a global popularity contest to Saddam Hussein, and he's looking to build diplomatic support in Europe by flying to the Azores, a remote archipelago in the Atlantic, to persuade the persuaded leaders of Britain and Spain to stand firm with him. I guess the North Pole wasn't available. I've been to the Azores. It was with Secretary of State James Baker on, as I recall, one of his seven trips around the world to build support for Gulf War I. Mr. Baker used the Azores to refuel.

- - -

Lord knows, I don't diminish the threats we face, but for 18 months all we've been doing is exporting our fears to the world. Virtually all of Mr. Bush's speeches are about how we're going to protect ourselves and whom we're going to hit next. America as a beacon of optimism — America as the world's chief carpenter, not just cop — is gone. We need a little less John Wayne and a little more J.F.K. Once we get this Iraq crisis behind us, we need to get back to exporting our hopes, not just our fears.
Tilvitnanir: © 2003 The New York Times Company.
Posted by Agust at 07:57 EH

Three Amigos

Three Amigos
Þeir háu herrar sem nú funda á Asoreyjum eru svo samstíga að þeir ganga m.a.s. allir í eins fötum.
Posted by Agust at 05:01 EH

Veikara kynið

"Það sem drepur þig ekki, styrkir þig," er þetta ekki haft eftir Nietzsche? Nokkuð til í þessu. Veit þó ekki hvort það hafi eitthvað með þetta að gera: The Weaker Sex
. Þarna er rakið í örstuttu máli hvernig standi á því að þrátt fyrir að 15% líklegra sé að vísir að sveinfóstri verði til við getnað þá eru konur orðnar fleiri en karlar strax um miðjan fertugsaldurinn. Og ef út í það er farið, eru átta sinnum fleiri konur yfir 100 ára en karlar.
Sveinfóstur eru líklegri til að ná því ekki að fæðast, drengir eru líklegri til að hafa allt frá lit- og lesblindu til ofvirkni og taugasjúkdóma, unglingsstrákar eru líklegri til að farga sér, fara sér á voða og m.a.s. á efri árum eru karlmenn í meiri hættu að fara sér á voða.
Posted by Agust at 01:34 EH

Bandaríkjamenn, himnaríki og helvíti

Ég hlustaði á þennan pistil í útvarpinu í gær. Góður punktur:
According to that faith there is such a thing as heaven - 86% of Americans, we are told by the pollsters, believe in heaven.
But much more striking to me, and much more pertinent to current world events, is the fact that 76% or three out of four people you meet on any American street believe in hell and the existence of Satan.
They believe that the devil is out to get you. That evil is a force in the world - a force to be engaged in battle.
Satt að segja hafði ég ekki heyrt þessar tölur áður og komu þær mér á óvart, ég bjóst ekki við þeim svona rosalega háum. Hélt að nær helmingi Bandaríkjamanna trúi á tilvist helvítis, ekki 3/4.
Posted by Agust at 12:54 EH

mars 15, 2003

Uppreisn í Mið-Afríku lýðveldinu

Átök í Mið-Afríku lýðveldinu. Einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að flestum sé nokk sama.
Þetta litla, 3,5 milljón manna ríki er eitt hið fátækasta í Afríku (PPP=$1300). Núverandi forseti, Patesse, hefur a.m.k. staðist sjö uppreisnartilraunir. Þetta virðist vera sú áttunda. Hann var kosinn forseti 1993 og er frá norðurhluta landsins. Ættflokkar frá suðurhluta landsins, sem eru betur menntaðir, höfðu fram að því haft töglin og halgdirnar í stjórnkerfi landsins og hefur Patesse ekki notið stuðnings meðal þeirra. Mikil ólga hefur verið í landinu og vakti það athygli þegar Khaddafi sendi her til Mið-Afríku lýðveldisins til að hjálpa Patesse til að ráða liðurlögum uppreisnar sem gerð var undir forystu fyrrverandi forseta landsins, Kolingba. Einnig hefur hann notið liðsinnis kongósku skæruliðasveitarinnar MLC undir forystu Jean-Pierre Bemba, sem hefur völd í norðurhluta L.l. Kongós.

Patesse var í útlegð á níunda áratugnum, sakaður um að hafa reynt að plotta gegn Kolingba, sem var forseti '81-'93. Patesse vann bæði Kolingba og David Dacko í kosningunum '93. Dacko steypti hinum sjálfkjörna keisara landsins, Jean-Bedel Bokassa, 1979 og var sjálfur forseti þangað til Kolingba kom honum frá völdum '81. Patesse aftur á móti var í stutta stund forsætisráðherra undir Bokassa 1976. Síðast var kosið 1999 og var Patesse þá sakaður um kosningasvindl.

Bokassa var talinn einn klikkaðasti týran Afríku í sinni tíð. Hann komst til valda 1965, þegar hann steypti fyrsta forseta landsins frá sjálfstæðinu 1960, David Dacko. Já, sá hinn sami Dacko og varð forseti þegar Bokassa var sjálfum steypt. 1962 gerði Dacko Mið-Afríku lýðveldið að eins flokks ríki og um svipað leyti fékk hann Bokassa til að verða yfirmann nýlega stofnaðs hers landsins. Bokassa hafði unnið sig upp í franska hernum, m.a. í Indókína og var kapteinn þegar hann var kallaður heim til að taka við hernum. Allt var komið í kaldakol 1965 og Bokassa steypti Dacko. Sjö árum síðar gerði hann sig að forseta til æviloka og 1977 lýsti hann sjálfan sig keisara og breytti nafni landsins í Mið-Afríku keisaradæmið. Keisarinn hafði mikið dálæti á Napóleon og bar krýningarathöfnin þess merki, sem kostaði ígildi þjóðartekna landsins það árið. Hann hirti mestmegnis allar útflutningstekjur landsins af demöntum og bjó í höll sem hæfði hvaða keisara sem er. Valery Giscard d'Estaing, fyrrv. Frakklandsforseti og núverandi ritstjóri stjórnarskrár ESB heimsótti keisarann reglulega til að fara í veiðiferðir með honum. Sú saga gekk fjöllunum hærra að Bokassa væri gefinn fyrir menn - þ.e.a.s. í matinn. Sagt var að pólitískir andstæðingar hans enduðu ósjaldan ofan í potti í eldhúsi keisarahallarinnar. "Mannætu-keisarinn" var hann m.a.s. stundum kallaður og segir sagan að leyfarnar af leiðtoga stjórnarandstöðunnar hafi fundist í stórri kæligeymslu keisarahallarinnar, þó áreiðanlegri heimildir hermi að það hafi verið kennari nokkur sem hafði verið saknað í nokkurn tíma. Tími Bokassa var timi ógnarstjórnar en þó ríkti nokkur stöðugleiki í landinu og var uppbygging infrastrúktúrs nokkur á tímabili.
Bokassa var steypt með aðstoð franskri fallhlífahersveit 1979. "Keisaralegi herinn" hleypti ekki af einu einasta skoti til varnar keisaranum. Nokkru áður hafði hinn keisaralegi her drepið um 100 skólabörn eftir skipun keisarans, eftir kvartanir yfir skólabúningum sem skylda var að kaupa af verksmiðju keisarans. Vakti það að vonum mikil viðbrögð. Hann flúði til Fílabeinsstrandarinnar og síðar Frakklands. Hann sneri aftur '86 og var hann dæmdur til dauða fyrir morðin á skólabörnunum og öðrum glæpum, en sýknaður af mannáti, sem miklar sögur voru um að hann stundaði. Dauðadóminum var breytt í fangelsisvist en honum var loks sleppt úr fangelsi '93 og að lokum lést hann þremur árum síðar, 75 ára að aldri.
Heimildir: BBC o.fl.

Uppfært 16/3: Svo virðist sem valdaránið hafi takist.
Posted by Agust at 07:23 EH

Snúinn aftur?

Mér finnst Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður hjá Stöð 2/Bylgjunni, hafa ansi líka rödd og Þórir Guðmundsson, fyrrv. fréttamaður og núverandi Rauða kross-maður.
Það sem gerir þá enn líkari er að þeir eru að flytja nokkuð líkar fréttir, þ.e.a.s. af erlendum vettvangi.
Posted by Agust at 05:45 EH

mars 13, 2003

Þjóðernishyggja, sambandsríkjastefnan og Evrópusambandið

Málþing Stofnunar um stjórnsýslufræði og stjórnmál þann 13. mars í samstarfi við breska sendiráðið. Aðalfyrirlesari verður Brendan O'Leary forstöðumaður við Solomon Asch Center for the Study of Ethnopolitical Conflict og prófessor í stjórnmálafræðum við University of Pennsylvania. Stutt innlegg munu ennfremur flytja Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, ennfremur Ólafur Stephensen aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, sem hefur oft gert þjóðernishyggju að umfjöllunarefni í greinum í blaðinu og skrifaði á sínum tíma MSc-ritgerð við LSE um minnihlutaþjóðernishyggju í Evrópusambandinu. Fundar- og umræðustjórnendur verða Arnar Másson stjórnmálafræðingur og Davíð Logi Sigurðsson sagnfræðingur, stundakennarar í námskeiði um þjóðernishyggju og þjóðernisátök við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands. Fimmtudag 13. mars kl. 16.00-18.00 í Lögbergi stofu 101
Þó ég hafi engan tíma til þess, þá er ég hræddur um að ég geti ómögulega sleppt þessum málþingi. Enginn smá titill og vonandi að það standi undir nafni.

ps. Það var verið að benda mér á þetta: grein eftir Reyni Traustason á Blaðamannafélagsvefnum.
Posted by Agust at 02:15 EH

Poppkornsfiskur

Skemmtileg frétt á Interseafood.com: Íslenskur poppkornfiskur vinnur til verðlauna í Boston
Gaman væri að smakka þetta.

ps. Vil benda á þessa umræðu á eoe.is.
Posted by Agust at 11:45 FH

mars 12, 2003

Skattahækkanir

Tölfræðikennarinn minn leynir á sér: Skattahækkun er skattahækkun, segir fjármálaráðuneytið.
Ég hef heldur aldrei skilið hvernig það getur talist "skattalækkun" þegar "tekjur aukast og þar með skattarnir", þegar hlutfall tekna sem fer í skatta hækkar (notabene: hlutfallið, ekki bara upphæðin). Ég hef heldur ekki skilið hvernig Geir frændi fær það út að "skattarnir hækka í góðærinu", þegar það hlýtur að hægja á uppganginum þegar jaðarskattar eru greinilega óhagstæðir (a.m.k. skv. málflutningi stjórnarherranna).

Sigurður skrifaði líka annan pistil á Heim.is, sem vitnað hefur verið í: Dr. Jekyll og Seðlabankinn

ps. Ég er ansi sáttur við ritstjórn NYT þessa dagana, fyrst "No to War" á sunnudaginn og í dag gagnrýnir ritstjórnin Bush-stjórnina (réttilega) fyrir framgöngu hennar í málefnum fanganna í Guantanamo.
Posted by Agust at 10:30 EH

mars 11, 2003

Áfrýjunardómstóll íhaldsmanna

Einn er sá dómstóll í Bandaríkjunum sem íhaldssamari er en flest annað og er alræmdur fyrir það. Umræddur dómstóll er United States Court of Appeals for the Fourth Circuit.
Hið stórgóða New York Times Magazine er með ítarlega umfjöllun, The Power of the Fourth, um áfrýjunardómstólinn. Afar löng grein en ofar áhugaverð. NYT Magazine er ekki eitthvað götublað sem prentar hvað sem er. Engu að síður fær dómstóllinn óblíða útreið í greininni. Hvers vegna? Vegna þess að dómstóllinn hefur trekk í trekk dæmt með ótrúlegum hætti. Ef svo "illa" vill til að frjálslyndir dómarar sem bera réttindi einstaklingsins fyrir brjósti dragast í meirihluta þriggja manna dómstóls (sem tölva velur random úr hópi 12 dómara við réttinn) er málinu yfirleitt skotið til en banc ákvörðunar, þar sem "frjálslyndisvillan" er leiðrétt af meirihluta dómaranna, sem voru flestir skipaðir af Reagan eða Bush Sr.
Dómstóllinn fer með mál Virginíu, Vestur-Virginíu, Maryland, Norður-Karólínu og Suður-Karólínu. Ótrúlega hátt hlutfall dómaranna eru fyrrverandi starfsmenn eða aðstoðarmenn Jesses Helms eða Stroms Thurmond, eða þeim tengdir. Dómstóllinn dæmir nær alltaf í takt við kenningar íhaldssamra júrista, judicial restraint, í málum á borð við jafnrétti, fóstureyðingar o.fl.

Nefnd eru dæmi um m.a. ótrúlegan "rökstuðning" dómstólsins í málum dauðadæmdra manna og rökstuðningurinn í máli Lísu Ocheltree, sem kærði vinnustað sinn fyrir að gera ekkert í kynferðislegu áreiti sem hún varð fyrir (hún var eini kvenstarfsmaðurinn í verksmiðju fyrirtækisins).
A co-worker pinched the nipples of a mannequin while another fell to his knees and simulated oral sex on it. A co-worker teased her with a dirty song while others, including her supervisor, laughed at the show. A colleague tried to get her to react to a photograph of a man with his genitalia pierced. During Ocheltree's trial, a male co-worker said that the other men would routinely fondle the mannequins because they knew it bothered Ocheltree.
Ocheltree complained about the environment during an employee meeting, and she was rebuffed repeatedly when she tried to get an audience with the company's senior executives. After about 18 months at Scollon, she was fired. A federal judge summarily dismissed her complaint, but, representing herself, she appealed that judgment to the Fourth Circuit, which determined that she had grounds for trial. A jury awarded Ocheltree $7,280 in compensatory damages and $400,000 in punitive damages. The judge reduced the damages to $50,000 because Scollon is a small business. [...] Scollon Productions appealed the jury's verdict to the Fourth Circuit.
Málið kom fyrir dóminn, þar sem þrír dómarar, tveir íhaldsmenn í meirihluta, sýknuðu fyrirtækið. Svo vitnað sé í Karen Williams, dómara (sem var skipuð '92 af Bush Sr. eftir ábendingu Thurmond, sem er stórvinur pabba hennar, þeir "double-deituðu" víst saman, sem á þeim tíma var forseti öldungadeildar S-Karólínu):
Williams wrote that there was no reason to believe that the vulgar atmosphere in the workshop had anything to do with Ocheltree's presence or the fact that she was a woman. The incidents were isolated, and the rest was banter, she said. The courts shouldn't treat women preferentially by insulating them from everyday insults. And further, she added, there was some indication that Ocheltree herself was not a ''model of femininity.''
Tvær stjörnur íhaldsmanna meðal dómara og væntanlegir kandídatar Bush forseta ef hann þarf að skipa hæstaréttardómara eru þeir Luttig og Wilkinson. Í einu málu sem kom fyrir dóminn sagði Wilkinson lögreglumenn ekki hafa brotið stjórnarskrárbudinn rétt fanga þegar þeir skyldu hann eftir handjárnaðan við stöng á bílastæði um miðja nótt og hringdu svo í lögregluna í næstu sýslu til að handtaka hann:
The officers had tied Robles to a pole in a parking lot in the middle of the night with a note at his feet stating that he was wanted on an outstanding traffic warrant by a neighboring county. Wilkinson, while condemning the officers for behaving like Keystone Kops, said that they could not have known that they were violating Robles's constitutional rights because it had never been specifically enunciated that what they did was such a violation.
Reyndar er þetta nefnt sem eitt af fáum dæmum þar sem Wilkinson og Luttig greindi á.
Luttig aftur á móti áorkaði því að dæma svokallaðan "Violence Against Women Act" ekki í samræmi við stjórnarskránna. Hann var þar á móti tveimur frjálslyndum dómurum sem dæmdu með honum í málinu þegar það kom fyrir dómstólinn. Málinu var vísað til en banc, þar sem "frjálslyndisvillan" var leiðrétt. Þetta varð til þess að Hæstiréttur Bandaríkjanna fékk málinu áfrýjað til sín og 5 dómarar af 9 dæmdu í takt við það sem Fjórði áfrýjunardómstóllinn hafði dæmt. Sá úrskurður gildir sem landslög, ekki lögin, sem átti að verja konur gegn ofbeldi sem var sérstaklega beint að þeim vegna kynferðis. Áður höfðu 15 aðrir áfrýjunardómarar tekið málið fyrir (5 dómstólar) en Lutti var sá 18. og sá eini sem dæmdi þau ekki í samræmi við stjórnarskránna. Svo vitnað sé í greinina í NYTM:
And it is true that the Fourth Circuit is the appellate court closest in thinking to the Rehnquist Court. But the relationship is symbiotic: the Fourth Circuit does not just imitate; it also initiates. It pushes the envelope, testing the boundaries of conservative doctrine in the area of, say, reasserting states rights over big government. Sometimes, the Supreme Court reins in the Fourth Circuit, reversing its more experimental decisions, but it also upholds them or leaves them alone to become the law of the land.
Nokkrar staðreyndir um dómstólinn (fengnar úr áðurnefndri grein): Frá 1973-95 breytti Fjórði áfrýjunardómstóllinn 12% þeirra dauðarefsingardóma sem komu fyrir dómstólinn. Meðaltalið yfir öll Bandaríkin er 40%! Í þeim málum sem koma fyrir dómstólinn og kynferðisleg áreitni hefur verið kærð dæmir hann meintu fórnarlambi í vil í aðeins 21% tilfella. Meðaltalið yfir öll Bandaríkin er 39% og í áfrýjunardómstólnum í New York, sem er að meirihluta skipaður af Demókrötum, er hlutfallið 80%!
Það er ekki úr vegi að ljúka þessu á orðum Deboruh Sontag, sem skrifar greinina í NYTM:
Legal scholars talk about the pendulum swinging from liberal to conservative, from a preoccupation with individuals' rights to a preoccupation with states' rights, and suggest that, in time, it will swing back once more. It would certainly help many Americans sustain their faith in the system if the courts could find their equilibrium, if they could become less ideological, less predictable and less political. That doesn't appear to be on the horizon, though, not in the foreseeable future. In the historic site in Richmond where the Confederacy once thrived, the United States Court of Appeals for the Fourth Circuit is ushering in the 21st century.
Tilvitnanir: © 2003 The New York Times Company.
Posted by Agust at 08:11 EH | Comments (0)

Hannes Hólmsteinn!

Það er varla hægt að skrifa nafn þessa manns öðruvísi en með upphrópunarmerki.
Ég horfði á víðfræga umræðu í Silfri Egils frá því á sunnudag á vídjói í gær. Þvílíkt og annað eins. Enginn kom vel út úr þessu, þó ekki vilji ég meina að Egill hafi staðið sig jafnilla og sumir eru að tala um.
Fréttablaðið á "óþekkta" eigendur, sem flestir þykjast engu að síður vita hver/hverjir er(u). Gott og vel, það var ekki umræðuefnið í sjálfu sér í þessum þætti, enda hverju myndi það skila? Gunnar Smári neitar að gefa það upp og eigendurnir vilja ekki gangast fyrir eign sinni. Það var því allt í lagi af Agli að stoppa þá umræðu.
Samfylkingar-Páll frá Seltjarnarnesi stóð á öndinni við að garga að Fréttablaðið hefði logið að lesendum sínum. Málið snérist um hvort Hreinn Loftsson hefði tjáð sig um málið eða ekki. Hann gerði það ekki opinberlega og vildi ekki láta vitna í sig, ég sá ekki "stóra hneykslið" í þessum vinnubrögðum við gerð fréttarinnar. Bæði Fréttablaðið og önnur blöð hafa verið uppvís að mun verri vinnubrögðum en þetta og ekki þótt neitt stórmál.

Talandi um stórmál, það eru menn sem eru vondir við Davíð Oddsson!! - skríkti Hannes margsinnis.
Forsætisráðherra stakk sér sjálfviljugur út í forarpyttinn þar sem hann er dýpstur í þessari umræðu. Framganga hans varð ekki til að afla honum virðingar og trausts hjá þeim sem þetta skrifar, þvert á móti.
Nú er ég líklegast orðinn persona non grata í huga Hannesar Hólmsteins, minna þarf ekki þegar maður efast um guðdómlegt vald hins mikla leiðtoga.

Hannes kom á Viðskiptaþing hérna í HR um daginn. Þar flutti hann sama fyrirlesturinn og ég hef heyrt a.m.k. þrisvar sinnum um hvernig Ísland getur orðið ríkasta land í heimi (fyrir tilstuðlan Davíðs Oddssonar) og hvernig við höfum það sem við höfum þökk sé hinum mikla leiðtoga (sem fær auðvitað mynd af sér á góðum stað í glærusjóvinu - enda hló fólk þegar hún birtist). Þegar komið var að spurningum voru það ekki útlistingar á hvernig við gætum orðið ríkust þjóða heimsins heldur frekar spurningar um komandi kosningar (þetta var í febrúar, áður en Fréttablaðið fór í enn eina "krossferðina" gegn Davíð og hann mundi eftir því að Jón Ásgeir ætlaði að múta honum). Nema hvað, Hannes fékk spurningu um persónudýrkun og að vonum hló allur salurinn.

Hannes er gæddur þeim eiginleika að hann getur fengið góðan málstað til að hljóma hræðilega. Honum er líka fyrirmunað að sjá hlutina í heilbrigðu ljósi snerti þeir persónu eða starf Davíðs Oddssonar. Hann greinir ekki aðalatriðin frá aukaatriðunum þegar Davíð á í hlut - svo einfalt er það. Það er bara einn sannleikur þegar svo ber undir: Davíð hefur rétt fyrir sér.
Þetta fíaskó undanfarna daga er gott dæmi, þar hefur Davíð orðið tvísaga um fund þeirra félaga í London, annarsvegar sagði Hreinn sig úr einkavæðingarnefnd eða ekki. Og það að þá greini á, Davíð og Hrein? Nei, algjört aukaatriði! Algjört aukaatriði! Aðalatriðið er hinsvegar að Jón Ásgeir hefur orðið margsaga í þessu máli ... o.s.frv.

Það er erfitt að skilja hvernig annars gáfaðir menn og vel af guði gerðir í marga staði geti orðið svona gjörsamlega blindir á allt sem varðar eina persónu. Maður getur e.t.v. reynt að skilja það þegar fólk er systematískt heilaþvegið, einsog N-Kórea er besta dæmið um í dag - þar sem hinn mikli leiðtogi býður m.a.s. lýðnum góða nótt í gegnum útvarp sem aldrei má slökkva á. Lofið verður á endanum oflof. Verst að Hannes skuli ekki sjá það.
Posted by Agust at 10:08 FH | Comments (0)

mars 10, 2003

Carter

Greinin eftir Jimmy Carter í New York Times í dag er ansi beinskeytt, a.m.k. ef haft er í huga að hún er skrifuð af atvinnudiplómata.
Just War — or a Just War? - m.a.s. orðaleikurinn í yfirskriftinni er hvass.
Hann segir m.a.
As a Christian and as a president who was severely provoked by international crises, I became thoroughly familiar with the principles of a just war, and it is clear that a substantially unilateral attack on Iraq does not meet these standards. This is an almost universal conviction of religious leaders, with the most notable exception of a few spokesmen of the Southern Baptist Convention who are greatly influenced by their commitment to Israel based on eschatological, or final days, theology.
Svo nefnir hann fimm ástæður sem hann telur þurfa fyrir "lögmætri" árás:
  • The war can be waged only as a last resort, with all nonviolent options exhausted.
  • The war's weapons must discriminate between combatants and noncombatants.
  • Its violence must be proportional to the injury we have suffered.
  • The attackers must have legitimate authority sanctioned by the society they profess to represent.
  • The peace it establishes must be a clear improvement over what exists.
Að lokum segir hann:
What about America's world standing if we don't go to war after such a great deployment of military forces in the region? The heartfelt sympathy and friendship offered to America after the 9/11 attacks, even from formerly antagonistic regimes, has been largely dissipated; increasingly unilateral and domineering policies have brought international trust in our country to its lowest level in memory. American stature will surely decline further if we launch a war in clear defiance of the United Nations. But to use the presence and threat of our military power to force Iraq's compliance with all United Nations resolutions — with war as a final option — will enhance our status as a champion of peace and justice.
Tilvitnanir: © 2003 The New York Times Company.

Í dag birtist líka leiðari í NYT, Saying No to War, þar sem segir m.a. "If it comes down to a question of yes or no to invasion without broad international support, our answer is no." Held að ritstjórn dagblaðs geti ekki gefið skýrari skilaboð um stefnu sína en þetta.
Posted by Agust at 12:24 FH

Ultra-kaþólikkinn Mel Gibson

Alveg hreint mögnuð grein í New York Times Magazine, Is the Pope Catholic...Enough?, sem fjallar m.a. um kirkju sem Mel Gibson er að reisa, pabba hans og hans skoðanir og kvikmynd á aramönsku og latínu sem Mel Gibson er að gera fyrir eigin kostnað um síðustu stundirnar í ævi Jesús Krists.
Pabbinn m.a. dregur helförina í efa, hann segir að seinna kirkjuþing Vatíkansins '62-'65 hafi verið samsæri Gyðinga og frímúrara. Allir páfar eftir Jóhannes XXIII. (að honum meðtöldum) o.s.frv. o.s.frv.
Þeir feðgar teljast til svokallaðra "traditionalists", sem hafna öllum breytingum Vatíkansins seinni hluta 20. aldar sem allsherjar samsæmi. Þeir messa á latínu og konum er skylt að bera höfuðklúta við messur (ekki er tekið fram hvort þær fái að sitja með körlum í kirkjunni einsog var á miðöldum), svo eitthvað sem nefnt.
Pabbi Gibson gefur út ársfjórðungslegt rit, "The War is Now!", svona ásamt því að vera virkur í baráttunni við "hið illa" á margan annan hátt, þótt hann sé kominn á 85. aldursár. Hann kallar páfann m.a. "Garrulous Karolus, the Koran Kisser" í blaðinu sínu, enda skrifaði hann heila bók með titlinum "Is the Pope Chatholic?".
Alveg stórmerkilegt að lesa þetta, ekki vissi ég að Mad Max væri öfga-kaþólikki!
Posted by Agust at 12:06 FH

mars 09, 2003

Hið æsispennandi líf mitt

Kominn tími á smá dagbókarfærslu hérna á síðunni.
Fyrir rúmum hálfum mánuði (hvað tíminn líður fljótt...) vakti ég dag og nótt að berja saman ritgerð í stjórnun. Það hafðist með því að sleppa því að sofa (ef aðeins væru fleiri klukkutímar í sólarhringnum...). Að hluta til tímaleysi, að hluta til skipulagsleysi, en svona er þetta stundum. Hafði verið heldur strembin vika, stefnumótunarprófið á fimmtudeginum gekk vel (vona ég a.m.k.) og var prófið nokkuð sanngjarnt. Um nóttina svaf ég ekkert (lagði mig í tvo tíma í stað þess að mæta í tölfræði) og var fram á síðustu stundu að laga ritgerðina til. Hljóp næstum niður deildarforseta lagadeildar í stiganum upp á skrifstofu (hef sjaldan hlaupið eins hratt) og náði að skila á slaginu fimm á föstudeginum.
Fór svo heim og reyndi að fara að sofa en gelgjuafmæli systur minnar kom í veg fyrir það. Var orðinn ruglaður af svefnleysi og svaf lítið þegar ég loksins gat það (ekki). Eyddi laugardeginum í hálfgerðu svefnmóki. Ljósritaði markaðsfræðibókina hjá Ingu Steinunni, sem átti afmæli þann dag, og auðvitað fékk hús rós í tilefni dagsins.

Einbeitingin var undir frostmarki og horfði ég því á megnið af "Kúrekum norðursins" eftir Friðrik Þór. Íslensk drykkju(ó)menning á Kántríhátíð 1983... úff! Þó maður þekkti ekkert af fólkinu, kannaðist maður engu að síður við karakterana og stemmninguna. Hef aldrei skilið hvernig menn geta setið hest þegar þeir standa varla í lappirnar af ölvun. Skildi þennan "hæfileika" aldrei og skil ekki enn. Vonandi að íslenskir drykkjusiðir hafi batnað eitthvað, allavega finnst manni það.

Sunnudagurinn fór svo í lestur fram á nótt og prófið á mánudagsmorgninum gekk bærilega. Sami mánudagur reyndist afmælisdagur minn og ákvað ég, þar sem arabískunámskeiðinu sem ég átti að byrja á um kvöldið var frestað um viku (byrjar semsagt annað kvöld) að bjóða nokkrum gestum í bollukaffi í tilefni dagins, sem var jú í ofanálag bolludagur.
Hélt svo eitt fjölmennasta afmæli sem ég hef haldið í háa herrans tíð, heilar sjö hræður, sem gúffuðu í sig á fjórða tug bolla og kaffi með. Bara sáttur við daginn, fékk m.a.s. nokkrar gjafir :-) Einhverra hluta vegna voru allar afrekssögur Þóris og Jóa rifjaðar upp, einsog svo oft áður. Enginn af þessu fólki mun hjá Pringles í sama ljósi eftir þá sögu...

Svo fór vikan í misskemmtileg verkefni og annað vesen, en þó mest í að læra undir tölfræðiprófið sem var svo á föstudaginn. Það gekk síðan bara bærilega, held ég nái jafnvel að rúmlega tvöfalda einkunnina frá því síðast, enda Wilcoxon mikill vinur minn.
Ég föstudagskvöldið, meðan ég bauð eftir hinum ómissandi Osbournes-þætti, las ég litla bók sem Svana svefnpurka gaf mér í afmælisgjöf, "Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum" eftir George H.F. Schrader. Heilræðakver sem gefið var út 1913 og Ásgeir Jónsson og Viðskipta- og hagfræðideild HÍ hafa nú endurútgefið. Áhugavert fyrir svona sögunörda einsog mig :-)
Svaf svo vel og lengi (loksins). Gerði fátt merkilegt þangað til ég fór og borðaði með Siggu. Afrekaði svo að horfa á einhverja mynd með Johnny Depp þar sem hann lék helsta kókaínbarón Bandaríkjanna um 1980.

Missti af megninu af Silfrinu í dag, var í heimsókn hjá ömmu og kom ekki heim fyrr en að ganga tvö. Þegar ég kveikti á sjónvarpinu virtust menn vera á mörkum þess að hjóla í hvern annan. Hannes Hólmsteinn virtist m.a.s. vera rólegastur af þeim. Þarf að sjá endursýninguna í kvöld, eitthvað mikið hefur gengið á. Arnór Hannibalsson spjallaði stuttlega um Stalín. Einhverja nóttina í vikunni heyrði ég endurtekningu á dægurmálaútvarpinu á Rás 2. Þar var rætt við Óla komma. Hann gekk algjörlega fram af manni. Stalín var víst bara fínn karl, þetta er allt misskilningur, svona einsog með Jesú Krist. Ef menn lýsa yfir að helförin hafi verið blöff verða menn reiðir og fordæma þá. Gamlir eftirlegukommar eru hinsvegar dregnir í útvarpið til að dásama mikilmennið Stalín. Sá sem tók viðtalið talaði til stalínistans einsog ekki væri ágrenningur meiri en hvort væri betra lið, KR eða Valur. Jólasveinninn að norðan hneykslaði mig ekki eins mikið og sá sem dró hann í útvarpið og hafði varla fyrir því að andmæla honum, "Ha, neinei, nú hefur Valur ekki unnið titilinn í háa herrans tíð, hvernig útskýrirðu það þá?". Íslenskt fjölmiðlafólk alltaf jafn professional, það má það eiga - ekki.

Nú bíður mín hinsvegar alþjóðafjármálaverkefnið. Síðan er arabískunámskeiðið að byrja í þessari viku og skil á stórri skýrslu á föstudaginn. Nóg að gera. Svo vona ég að ég fái nokkra daga til að t.d. hitta fólk sem ég hef vanrækt undanfarið. Síðan byrjar próflestur, próf síðustu tvær vikurnar fyrir páska.
Posted by Agust at 04:16 EH

20 ára upprifjun Sniðugt fyrir

Sniðugt fyrir þá sem eru ekki alveg með sögu síðustu 20 ára í Mið-Austurlöndum á hreinu að fá hana hér í mjög fáum orðum: Events that made headlines
Posted by Agust at 03:01 EH

Móðganir

Þegar arabískir leiðtogar móðga hvern annan, þá er það ekki á neinu götumáli:
"You're a liar and your grave awaits you" sagði t.d. Khaddafi við Abdúllah prins í Sjarm al Sjeik (reyndar á arabísku, ekki ensku).
Ég held að andrúmsloftið í fundarsalnum hafi verið ansi magnað þegar þessir stórlaxar fóru að skiptast á svívirðingum.
Tilvitnunin er fengin úr frétt METimes.
Posted by Agust at 02:30 EH

mars 07, 2003

Baugur

Án þess að ég nenni að tjá mig frekar um Baugs-fárið, þá verð ég að segja að þessi frétt kemur mér ekki á óvart: Guðfinna og Þorgeir segja sig úr stjórn Baugs
Ég veit ekki til þess að Þorgeir í Odda hafi verið þekktur fyrir annað en að vera heiðarlegur (en harður) í viðskiptum og ekki fyrir neitt bullshit. Guðfinnu er að sjálfsögðu ekki sætt í stjórninni, verandi rektor háskóla sem leggur mikið upp úr siðareglum í viðskiptum sínum.
Það kemur svosem ekkert á óvart að Norðmaðurinn sitji áfram, enda eiga þeir frændur stóran hlut í fyrirtækinu og þurfa að standa vörð um hann (og ættu því aldeilis að vera ósáttir eftir atburði síðustu daga). Jóhannes situr auðvitað áfram, af skiljanlegum ástæðum.
Sá trúnaðarbrestur sem átt hefur sér stað innan stjórnarinnar, með birtingu Fréttablaðsins á upplýsingum úr samskiptum stjórnar, er mun athyglisverðari en sá lágpólitíski skrípaleikur sem mann hafa staðið í undanfarið.
Hvernig nokkuð traust eigi að vera borið til þeirra sem stóðu í þeim birtingum skil ég ekki. Ég skil allavega ekki hvernig nokkur með almenna siðgæðisvitund ætti að geta setið í stjórninni áfram. Því hefði það komið mér verulega á óvart ef þessi frétt af útgöngu Þorgeirs og Guðfinnu hefði ekki borist. Sér í lagi í ljósi þess hvaða einstaklingar eiga í hlut.

Skemmtileg tilviljun að nú hengir þessi frétt inni á Moggavefnum: Jón Ásgeir tekur sæti í stjórn Flugleiða
Posted by Agust at 05:33 EH

mars 04, 2003

Egypska afstaðan

Þetta eru fréttir, Egyptar virðast eftir allt ekki styðja "útlegðar-hugmyndina".
Posted by Agust at 10:20 EH

Guð, Nasser og Norður-Kórea

Nicholas Kristof skrifar stórgóðan pistil í NYT í dag, God, Satan and the Media.
Þar skrifar hann um hina miklu gjá sem er orðin á milli þeirra 46% Bandaríkjamanna sem telja sig "born again Christians" og þeirra sem sjá veröldina í víðara samhengi en Biblíunnar.
Hann kemur líka inn á góðan punkt, sem er að ef gjáin heldur áfram að breikka getur það endað illa. Þessi gjá kristallast best í fóstureyðingaumræðunni vestan hafs, en varla er hægt að tala um umræðu, þar sem frekar hóparnir berjast í raun og veru frekar en að eiga í málefnalegri rökræðu. Gagnrýnin á hina "endurfæddu" er líka oft ómálefnaleg, segir Kristof, og ekki til annars en að breikka gjánna. Ómálefnaleg umræða er líka aldrei til góðs.
One of the deepest divides in America today is the gulf of mutual suspicion that separates evangelicals from secular society, and policy battles over abortion and judicial appointments will aggravate these tensions further in coming months. Both sides need to reach out, drop the contempt and display some of the inclusive wisdom of Einstein, who wrote in his memoir: "Science without religion is lame, religion without science is blind."
Aukinheldur: Fyrir viku síðan skrifaði Kristof pistil þar sem hann bar saman Saddam í dag og Nasser 1956. Hann er ekki fyrsti pistlahöfundurinn sem gerir það, en engu að síður alveg hægt að mæla með að lesa pistilinn: Hitler on Nile.
Fyrir helgi skrifaði hann líka um Norður-Kóreu en Bush-stjórnin er víst að spá í að bomba hugsanlega Norður-Kóreu líka (2 fyrir 1?). Alveg ótrúlegt. Sjá: Secret, Scary Plans

ps. Nú er allt vitlaust í Nicaragua vegna fóstureyðingar sem 9 ára stelpa fór í eftir að henni var nauðgað. Kaþólska kirkjan að vonum alveg brjáluð. Hvað er eiginlega að þessum heimi??
Posted by Agust at 04:47 EH

mars 03, 2003

Búlgaría

Þetta er ansi skondinn pistill, alveg á mörkunum að úthúðu heilu landi svona. Hinsvegar er þetta dagssatt: Bush's Warsaw War Pact

Aukinheldur frá Dowd: Bush Ex Machina
Posted by Agust at 04:21 EH

3. mars

Hér með tilkynnist að ég á afmæli í dag :-)
Posted by Agust at 02:28 EH

mars 02, 2003

Bókasafnið brennur Söguþekking Mbl-manna er

Söguþekking Mbl-manna er oft skemmtileg. Í frétt í dag segja þeir frá bruna í Bókasafninu í Alexandríu (hinu nýja), sem var opnar ekki alls fyrir löngu: "Eldur kom upp í hinu fornfræga Alexandríubókasafni í Alexandríu í Egyptalandi í dag. Fræðamiðstöðin var opnuð á ný í október." og svo "Safnið, sem er á 11 hæðum, var opnað á ný í október eftir endurbætur sem stóðu í 20 ár og kostuðu 200 milljónir dala."
Það er ekki hægt að skilja fréttina öðruvísi en að þarna hafi verið opnað eftir endurbætur "Bókasafnið [sem] var ein fyrsta miðstöð námsfúsra manna í heimi og var sett á fót eftir að Alexander hinn mikli stofnaði borg á Miðjarðarhafsströnd Egyptalands árið 332 fyrir Krist."
Stórbruni var í Bókasafninu í Alexandríu árið 48 f.Kr. í átökum Kleópötru, sem var studd af Júlíusi Sesari, við bróður hennar. Þá brunnu einhvers staðar á bilinu 40-400 þús. rit (heimildum ber ekki saman). Markús Antoníus gaf 200 þús. rit til safnsins skömmu síðar. Á þriðju öld brann það svo aftur í innanríkisdeilum.
Það er hinsvegar ekkert launungamál að Bókasafnið í Alexandríu hið fyrra var endanlega brennt undir lok 4. aldar af biskupnum í Alexandríu í kringum 400, Theófílusi að nafni. Nafnið bar hann með rentu því ástæðan fyrir brunanum var að í því voru geymdar "heiðnar bækur". Hann var þarna að bregðast við tilskipun Theódósíusar keisara í Róm sem árið 391 bannaði öll ókristin (heiðin) trúarbrögð. Nokkrum árum síðar var síðasti "alexandríski fræðimaðurinn" myrtur og var því ekkert bókasafn af þessari stærðargráðu í Alexandríu frá fimmtu öld og fram á okkar daga. Hið nýja bókasafn er reist með tilvísun í hið fornfræga safn, þó auðvitað muni það aldrei öðlast þá sérstöðu sem það hafði.
Heimildir: Bibalex.gov.eg o.fl.
Posted by Agust at 03:13 EH

mars 01, 2003

Afmælisstelpur

Í dag, 1. mars, eiga bæði Inga Steinunn og Þórunn afmæli. Til hamingju með afmælið stelpur!
Ég er að vinna með þeim að verkefni í fjögurra manna hópi. Þær tvær eiga afmæli í dag og ég á svo afmæli ekki á morgun heldur hinn. María greyið þarf svo að vinna með þremur fiskum en hún átti afmæli fyrir tæpum mánuði.
Svona líka samstilltur hópur :-)
Posted by Agust at 10:35 EH

Bad boy Billy

Sumir eru snillingar í að koma sjálfum sér í fréttirnar.
Posted by Agust at 10:29 EH