mars 10, 2003

Ultra-kaþólikkinn Mel Gibson

Alveg hreint mögnuð grein í New York Times Magazine, Is the Pope Catholic...Enough?, sem fjallar m.a. um kirkju sem Mel Gibson er að reisa, pabba hans og hans skoðanir og kvikmynd á aramönsku og latínu sem Mel Gibson er að gera fyrir eigin kostnað um síðustu stundirnar í ævi Jesús Krists.
Pabbinn m.a. dregur helförina í efa, hann segir að seinna kirkjuþing Vatíkansins '62-'65 hafi verið samsæri Gyðinga og frímúrara. Allir páfar eftir Jóhannes XXIII. (að honum meðtöldum) o.s.frv. o.s.frv.
Þeir feðgar teljast til svokallaðra "traditionalists", sem hafna öllum breytingum Vatíkansins seinni hluta 20. aldar sem allsherjar samsæmi. Þeir messa á latínu og konum er skylt að bera höfuðklúta við messur (ekki er tekið fram hvort þær fái að sitja með körlum í kirkjunni einsog var á miðöldum), svo eitthvað sem nefnt.
Pabbi Gibson gefur út ársfjórðungslegt rit, "The War is Now!", svona ásamt því að vera virkur í baráttunni við "hið illa" á margan annan hátt, þótt hann sé kominn á 85. aldursár. Hann kallar páfann m.a. "Garrulous Karolus, the Koran Kisser" í blaðinu sínu, enda skrifaði hann heila bók með titlinum "Is the Pope Chatholic?".
Alveg stórmerkilegt að lesa þetta, ekki vissi ég að Mad Max væri öfga-kaþólikki!
Agust skrifaði 10.03.03 00:06

Flokkun: Heimspeki , Menning , Meðmæli