mars 09, 2003
Hið æsispennandi líf mitt
Kominn tími á smá dagbókarfærslu hérna á síðunni.Fyrir rúmum hálfum mánuði (hvað tíminn líður fljótt...) vakti ég dag og nótt að berja saman ritgerð í stjórnun. Það hafðist með því að sleppa því að sofa (ef aðeins væru fleiri klukkutímar í sólarhringnum...). Að hluta til tímaleysi, að hluta til skipulagsleysi, en svona er þetta stundum. Hafði verið heldur strembin vika, stefnumótunarprófið á fimmtudeginum gekk vel (vona ég a.m.k.) og var prófið nokkuð sanngjarnt. Um nóttina svaf ég ekkert (lagði mig í tvo tíma í stað þess að mæta í tölfræði) og var fram á síðustu stundu að laga ritgerðina til. Hljóp næstum niður deildarforseta lagadeildar í stiganum upp á skrifstofu (hef sjaldan hlaupið eins hratt) og náði að skila á slaginu fimm á föstudeginum.
Fór svo heim og reyndi að fara að sofa en gelgjuafmæli systur minnar kom í veg fyrir það. Var orðinn ruglaður af svefnleysi og svaf lítið þegar ég loksins gat það (ekki). Eyddi laugardeginum í hálfgerðu svefnmóki. Ljósritaði markaðsfræðibókina hjá Ingu Steinunni, sem átti afmæli þann dag, og auðvitað fékk hús rós í tilefni dagsins.
Einbeitingin var undir frostmarki og horfði ég því á megnið af "Kúrekum norðursins" eftir Friðrik Þór. Íslensk drykkju(ó)menning á Kántríhátíð 1983... úff! Þó maður þekkti ekkert af fólkinu, kannaðist maður engu að síður við karakterana og stemmninguna. Hef aldrei skilið hvernig menn geta setið hest þegar þeir standa varla í lappirnar af ölvun. Skildi þennan "hæfileika" aldrei og skil ekki enn. Vonandi að íslenskir drykkjusiðir hafi batnað eitthvað, allavega finnst manni það.
Sunnudagurinn fór svo í lestur fram á nótt og prófið á mánudagsmorgninum gekk bærilega. Sami mánudagur reyndist afmælisdagur minn og ákvað ég, þar sem arabískunámskeiðinu sem ég átti að byrja á um kvöldið var frestað um viku (byrjar semsagt annað kvöld) að bjóða nokkrum gestum í bollukaffi í tilefni dagins, sem var jú í ofanálag bolludagur.
Hélt svo eitt fjölmennasta afmæli sem ég hef haldið í háa herrans tíð, heilar sjö hræður, sem gúffuðu í sig á fjórða tug bolla og kaffi með. Bara sáttur við daginn, fékk m.a.s. nokkrar gjafir :-) Einhverra hluta vegna voru allar afrekssögur Þóris og Jóa rifjaðar upp, einsog svo oft áður. Enginn af þessu fólki mun hjá Pringles í sama ljósi eftir þá sögu...
Svo fór vikan í misskemmtileg verkefni og annað vesen, en þó mest í að læra undir tölfræðiprófið sem var svo á föstudaginn. Það gekk síðan bara bærilega, held ég nái jafnvel að rúmlega tvöfalda einkunnina frá því síðast, enda Wilcoxon mikill vinur minn.
Ég föstudagskvöldið, meðan ég bauð eftir hinum ómissandi Osbournes-þætti, las ég litla bók sem Svana svefnpurka gaf mér í afmælisgjöf, "Heilræði fyrir unga menn í verzlun og viðskiftum" eftir George H.F. Schrader. Heilræðakver sem gefið var út 1913 og Ásgeir Jónsson og Viðskipta- og hagfræðideild HÍ hafa nú endurútgefið. Áhugavert fyrir svona sögunörda einsog mig :-)
Svaf svo vel og lengi (loksins). Gerði fátt merkilegt þangað til ég fór og borðaði með Siggu. Afrekaði svo að horfa á einhverja mynd með Johnny Depp þar sem hann lék helsta kókaínbarón Bandaríkjanna um 1980.
Missti af megninu af Silfrinu í dag, var í heimsókn hjá ömmu og kom ekki heim fyrr en að ganga tvö. Þegar ég kveikti á sjónvarpinu virtust menn vera á mörkum þess að hjóla í hvern annan. Hannes Hólmsteinn virtist m.a.s. vera rólegastur af þeim. Þarf að sjá endursýninguna í kvöld, eitthvað mikið hefur gengið á. Arnór Hannibalsson spjallaði stuttlega um Stalín. Einhverja nóttina í vikunni heyrði ég endurtekningu á dægurmálaútvarpinu á Rás 2. Þar var rætt við Óla komma. Hann gekk algjörlega fram af manni. Stalín var víst bara fínn karl, þetta er allt misskilningur, svona einsog með Jesú Krist. Ef menn lýsa yfir að helförin hafi verið blöff verða menn reiðir og fordæma þá. Gamlir eftirlegukommar eru hinsvegar dregnir í útvarpið til að dásama mikilmennið Stalín. Sá sem tók viðtalið talaði til stalínistans einsog ekki væri ágrenningur meiri en hvort væri betra lið, KR eða Valur. Jólasveinninn að norðan hneykslaði mig ekki eins mikið og sá sem dró hann í útvarpið og hafði varla fyrir því að andmæla honum, "Ha, neinei, nú hefur Valur ekki unnið titilinn í háa herrans tíð, hvernig útskýrirðu það þá?". Íslenskt fjölmiðlafólk alltaf jafn professional, það má það eiga - ekki.
Nú bíður mín hinsvegar alþjóðafjármálaverkefnið. Síðan er arabískunámskeiðið að byrja í þessari viku og skil á stórri skýrslu á föstudaginn. Nóg að gera. Svo vona ég að ég fái nokkra daga til að t.d. hitta fólk sem ég hef vanrækt undanfarið. Síðan byrjar próflestur, próf síðustu tvær vikurnar fyrir páska.
Agust skrifaði 09.03.03 16:16
Flokkun: Daglegt líf