maí 22, 2003

Sushi og hausmælingarkeppni

Í gær Unnur og Bjarni mér í sushi. Ég hef aldrei áður smakkað sushi. Ég hef aldrei áður þorað. Sushi fyrir mér hefur verið svona u.þ.b. eina fæðutegundin sem ég hef hræðst að borða. Ég gæti gert langan lista yfir furðulegan mat sem ég hef ekki veigrað mér við að láta ofan í mig en sushi hefur einhvern veginn alltaf "hrætt" mig. Ég bara trúi ekki að hrár fiskur geti verið góður.
Hvað um það, ég þurfti að éta ofan í mig alla þessa hræðslu og fordóma. Sushiið hennar Unnar var alveg syndsamlega gott og það sem meira er, ég verð alveg pakksaddur. Hvernig þessir pínulitlu munnbitar, sem virðast ekki upp í nös á ketti, gera mann svona pakksaddan skil ég ekki.
Með sushiinu var að sjálfsögðu drukkið sake. Ég viðurkenni það fúslega, sake er ódrekkandi að mér finnst. Ég smakkaði það fyrst einsog á að drekka það, við 40° og prufaði svo "on the rocks", hvort tveggja alveg ódrekkandi fannst mér. Montecillo hvítvínið er hinsvegar allt gott með fiski.

Yfir sushiinu leiddist umræðan að hausstærðum og var málband sótt og hausar matarboðsgestanna mældir. Ég marði sigur. Jói, hinn matarboðsgesturinn, reyndist hafa næstum jafn stóran haus og ég. Reyndar kom út úr þessari mælingu að hausinn á mér hefur "minnkað" um 1 cm. síðan á útskriftinni fyrir tveimur árum. Ég vil þó meina að ég hljóti að hafa minna af hári en þá :-)
Jói er að fara að útskrifast stúdent sem er fyndið í ljósi þess að hann var síðast í framhaldsskóla fyrir ca. fimm árum síðan. Frekar skrítið en nýstúdentar þurfa hvíta kolla og þar sem ég er með jafn afbrigðilega stóran haus og hann varð úr að hann fær stúdentshúfuna lánað hjá mér.
Í dag fann ég svo loksins húfuna, eftir langa leit. Nýstúdentinn getur því sótt hana við tækifæri, fyrir útskriftina.
Agust skrifaði 22.05.03 00:17

Flokkun: Daglegt líf , Matur og vín
Comments
Skrifa comment









Muna persónulegar upplýsingar?