maí 22, 2003
Sushi og hausmælingarkeppni
Í gær
Unnur og
Bjarni mér í sushi. Ég hef aldrei áður smakkað sushi. Ég hef aldrei áður þorað. Sushi fyrir mér hefur verið svona u.þ.b. eina
fæðutegundin sem ég hef hræðst að borða. Ég gæti gert langan lista yfir furðulegan mat sem ég hef ekki veigrað mér við að láta ofan í mig en sushi hefur einhvern veginn alltaf "hrætt" mig. Ég bara trúi ekki að hrár fiskur geti verið góður.
Hvað um það, ég þurfti að éta ofan í mig alla þessa hræðslu og fordóma. Sushiið hennar Unnar var alveg syndsamlega gott og það sem meira er, ég verð alveg pakksaddur. Hvernig þessir pínulitlu munnbitar, sem virðast ekki upp í nös á ketti, gera mann svona pakksaddan skil ég ekki.
Með sushiinu var að sjálfsögðu drukkið
sake. Ég viðurkenni það fúslega, sake er ódrekkandi að mér finnst. Ég smakkaði það fyrst einsog á að drekka það, við 40° og prufaði svo "on the rocks", hvort tveggja alveg ódrekkandi fannst mér. Montecillo hvítvínið er hinsvegar allt gott með fiski.
Yfir sushiinu leiddist umræðan að hausstærðum og var málband sótt og hausar matarboðsgestanna mældir. Ég marði sigur. Jói, hinn matarboðsgesturinn, reyndist hafa næstum jafn stóran haus og ég. Reyndar kom út úr þessari mælingu að hausinn á mér hefur "minnkað" um 1 cm. síðan á útskriftinni fyrir tveimur árum. Ég vil þó meina að ég hljóti að hafa minna af hári en þá :-)
Jói er að fara að útskrifast stúdent sem er fyndið í ljósi þess að hann var síðast í framhaldsskóla fyrir ca. fimm árum síðan. Frekar skrítið en nýstúdentar þurfa hvíta kolla og þar sem ég er með jafn afbrigðilega stóran haus og hann varð úr að hann fær stúdentshúfuna lánað hjá mér.
Í dag fann ég svo loksins húfuna, eftir langa leit. Nýstúdentinn getur því sótt hana við tækifæri, fyrir útskriftina.
Posted by Agust at
12:17 FH
|
Comments (0)
maí 04, 2003
Kringlukráin
Fór áðan ásamt fjórum öðrum á Kringlukránna, enda allt annað lokað í Kringlunni og mannskapurinn orðinn mjög svangur.
Við setjum inn og á sama tíma kom kona með dóttur sinni inn.
Eftir sléttan klukkutíma fengum við loks matinn okkar. Tíu mínútum áður hafði konan og dóttirin farið út, búnar að borða.
Ekki nóg með að maturinn kæmi ekki fyrr en eftir klukkutíma, heldur pantaði
María Björk pizzu með skinku, sveppum og svörtum pipar. Hún fékk pizzu með skinku, hitt var ekki til.
Við kvörtuðum, vitanlega, þegar komið var að því að borga. Viska er með fastan 10% afslátt, gott og vel. Við sem biðum í klukkutíma og fengum aftur á móti 15% afslátt og sú sem fékk allt annað en hún pantaði fékk 20%! Með öðrum orðum fengum við 5% og 10% afslátt fyrir þessa lélegu þjónustu.
Ég er ekki sáttur, þið metið sjálf hvort þetta sé boðlegt fyrir alla þessa bið.
Posted by Agust at
07:57 EH
|
Comments (0)
Pastabætt sjávarréttasúpa
Í kvöld eldaði ég ágætan mat. Afskaplega einfaldan en glettilega góðan. Samsetningin skapaðist af því hvað var til og var sem hér segir:
Tvær dósir af tilbúinni humarsúpu frá Ora. Þetta er niðursoðin súpa í stíl við Chambell og alveg ótrúlega góð. Ég hef það fyrir satt að mörg hótel og jafnvel betri veitingastaðir noti þessa súpu sem undirstöðu í sínar humarsúpur, bæti þá bara humar út í og e.t.v. öðru sjávarfangi ef við á. Krabbasúpan er líka góð frá Ora.
Hvað um það, ég var svo lánsamur að eiga hvíta hörpuskel í frystinum og afþýddi hana (ca. 250 gr).
Þar sem mér fannst þetta ekki alveg nægur "matur" sauð ég 100 gr. af Farfalle pastaslaufum.
Steikti hörpuskelina með hvítlauk og bætti svo í súpuna þegar ég hitaði hana upp. Smá koníakstár út í súpuna líka og simmsalabimm kominn kvöldmatur á rúmum 10 mínútum.
Þetta dugar vel fyrir tvo, a.m.k. var drjúgur afgangur og ég var alveg pakksaddur.
Posted by Agust at
01:41 FH
mars 20, 2003
Franskar kartöflur
Áðan varð mér það á að horfa á Jay Leno. Reyndar hló ég að einum brandara sem hann sagði í mónóloggnum, sem gerist ekki oft:
Bandaríkjamenn nota seli og höfrunga til njósna og sprengjuleitar. You know you have no allies, when you have to turn to other species!
Í "Jay Walk" var fólk ekki sammála hvort Írland væri í Miðjarðarhafinu, Kyrrahafinu eða landlukið (og nágrannarnir eru? -Evrópa!).
Hvað um það,
Bill O'Reilly frá Fox-stöðinni kom til Lenos og kallaði á alla Ameríkana að sniðganga franskar vörur (
hér má lesa transcript af viðtali sem hann tók við franskan blaðamann og gefur til kynna hver málflutningur hans er). Annað sem hann kom inn á var að Bandaríkin hefðu bjargað Frökkum og ef það hefði ekki verið fyrir
okkur þá væru þýska töluð í Frakklandi í dag og allir væru á Volkswagen.
Hvað um það, ég rakst á þessa síðu á netinu (í gegnum
Kristján og Stellu),
Belgianfries.com, þar sem segir m.a.:
In fact, the explanation is quite simple: in English, 'to french' means (or at least meant) 'to cut into lengthwise pieces'. You probably know 'frenched beans'. So logically, French Fries is short for 'frenched and fried potatoes'. In fact, the English call them 'chips', a word which has a similar meaning (a chipped piece of wood). (scr)
Ég verð samt að segja, talandi um að sniðganga vörur, að ég veit um fá uppátæki til "mótmæla" vitlausari en einmitt að sniðganga vörur frá hinni eða þessari þjóðinni. Ég skal eyða fleiri orðum í það við betra tækifæri.
Nú rétt í þessu var fréttaskýrandi að tala um það á BBCWorld hvað bandamenn Bandaríkjamanna væru litlar þungavigtarþjóðir, að ÍSLAND væri meðal þessara ríkja,
land sem hefur ekki einu sinni sinn eigin her!!
Posted by Agust at
11:59 EH
mars 13, 2003
Poppkornsfiskur

Skemmtileg frétt á Interseafood.com:
Íslenskur poppkornfiskur vinnur til verðlauna í Boston
Gaman væri að smakka þetta.
ps. Vil benda á
þessa umræðu á eoe.is.
Posted by Agust at
11:45 FH