mars 13, 2003
Þjóðernishyggja, sambandsríkjastefnan og Evrópusambandið
Málþing Stofnunar um stjórnsýslufræði og stjórnmál þann 13. mars í samstarfi við breska sendiráðið. Aðalfyrirlesari verður Brendan O'Leary forstöðumaður við Solomon Asch Center for the Study of Ethnopolitical Conflict og prófessor í stjórnmálafræðum við University of Pennsylvania. Stutt innlegg munu ennfremur flytja Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, ennfremur Ólafur Stephensen aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins, sem hefur oft gert þjóðernishyggju að umfjöllunarefni í greinum í blaðinu og skrifaði á sínum tíma MSc-ritgerð við LSE um minnihlutaþjóðernishyggju í Evrópusambandinu. Fundar- og umræðustjórnendur verða Arnar Másson stjórnmálafræðingur og Davíð Logi Sigurðsson sagnfræðingur, stundakennarar í námskeiði um þjóðernishyggju og þjóðernisátök við stjórnmálafræðiskor Háskóla Íslands. Fimmtudag 13. mars kl. 16.00-18.00 í Lögbergi stofu 101Þó ég hafi engan tíma til þess, þá er ég hræddur um að ég geti ómögulega sleppt þessum málþingi. Enginn smá titill og vonandi að það standi undir nafni.
ps. Það var verið að benda mér á þetta: grein eftir Reyni Traustason á Blaðamannafélagsvefnum.
Agust skrifaði 13.03.03 14:15
Flokkun: Stjórnmál