mars 11, 2003
Hannes Hólmsteinn!
Það er varla hægt að skrifa nafn þessa manns öðruvísi en með upphrópunarmerki.Ég horfði á víðfræga umræðu í Silfri Egils frá því á sunnudag á vídjói í gær. Þvílíkt og annað eins. Enginn kom vel út úr þessu, þó ekki vilji ég meina að Egill hafi staðið sig jafnilla og sumir eru að tala um.
Fréttablaðið á "óþekkta" eigendur, sem flestir þykjast engu að síður vita hver/hverjir er(u). Gott og vel, það var ekki umræðuefnið í sjálfu sér í þessum þætti, enda hverju myndi það skila? Gunnar Smári neitar að gefa það upp og eigendurnir vilja ekki gangast fyrir eign sinni. Það var því allt í lagi af Agli að stoppa þá umræðu.
Samfylkingar-Páll frá Seltjarnarnesi stóð á öndinni við að garga að Fréttablaðið hefði logið að lesendum sínum. Málið snérist um hvort Hreinn Loftsson hefði tjáð sig um málið eða ekki. Hann gerði það ekki opinberlega og vildi ekki láta vitna í sig, ég sá ekki "stóra hneykslið" í þessum vinnubrögðum við gerð fréttarinnar. Bæði Fréttablaðið og önnur blöð hafa verið uppvís að mun verri vinnubrögðum en þetta og ekki þótt neitt stórmál.
Talandi um stórmál, það eru menn sem eru vondir við Davíð Oddsson!! - skríkti Hannes margsinnis.
Forsætisráðherra stakk sér sjálfviljugur út í forarpyttinn þar sem hann er dýpstur í þessari umræðu. Framganga hans varð ekki til að afla honum virðingar og trausts hjá þeim sem þetta skrifar, þvert á móti.
Nú er ég líklegast orðinn persona non grata í huga Hannesar Hólmsteins, minna þarf ekki þegar maður efast um guðdómlegt vald hins mikla leiðtoga.
Hannes kom á Viðskiptaþing hérna í HR um daginn. Þar flutti hann sama fyrirlesturinn og ég hef heyrt a.m.k. þrisvar sinnum um hvernig Ísland getur orðið ríkasta land í heimi (fyrir tilstuðlan Davíðs Oddssonar) og hvernig við höfum það sem við höfum þökk sé hinum mikla leiðtoga (sem fær auðvitað mynd af sér á góðum stað í glærusjóvinu - enda hló fólk þegar hún birtist). Þegar komið var að spurningum voru það ekki útlistingar á hvernig við gætum orðið ríkust þjóða heimsins heldur frekar spurningar um komandi kosningar (þetta var í febrúar, áður en Fréttablaðið fór í enn eina "krossferðina" gegn Davíð og hann mundi eftir því að Jón Ásgeir ætlaði að múta honum). Nema hvað, Hannes fékk spurningu um persónudýrkun og að vonum hló allur salurinn.
Hannes er gæddur þeim eiginleika að hann getur fengið góðan málstað til að hljóma hræðilega. Honum er líka fyrirmunað að sjá hlutina í heilbrigðu ljósi snerti þeir persónu eða starf Davíðs Oddssonar. Hann greinir ekki aðalatriðin frá aukaatriðunum þegar Davíð á í hlut - svo einfalt er það. Það er bara einn sannleikur þegar svo ber undir: Davíð hefur rétt fyrir sér.
Þetta fíaskó undanfarna daga er gott dæmi, þar hefur Davíð orðið tvísaga um fund þeirra félaga í London, annarsvegar sagði Hreinn sig úr einkavæðingarnefnd eða ekki. Og það að þá greini á, Davíð og Hrein? Nei, algjört aukaatriði! Algjört aukaatriði! Aðalatriðið er hinsvegar að Jón Ásgeir hefur orðið margsaga í þessu máli ... o.s.frv.
Það er erfitt að skilja hvernig annars gáfaðir menn og vel af guði gerðir í marga staði geti orðið svona gjörsamlega blindir á allt sem varðar eina persónu. Maður getur e.t.v. reynt að skilja það þegar fólk er systematískt heilaþvegið, einsog N-Kórea er besta dæmið um í dag - þar sem hinn mikli leiðtogi býður m.a.s. lýðnum góða nótt í gegnum útvarp sem aldrei má slökkva á. Lofið verður á endanum oflof. Verst að Hannes skuli ekki sjá það.
Agust skrifaði 11.03.03 10:08
Flokkun: Stjórnmál
Comments
Skrifa comment