febrúar 21, 2003
Hafnarfjörður-Ofanleitið
Í á sjötta ár hef ég ferðast á milli heimilis míns í Hafnarfirði og Ofanleitisins hérna í Reykjavík. Mér telst til að ég hafi farið þess leið rúmlega þúsund sinnum, því oft hef ég þurft að fara hana tvisvar sama daginn og stundum oftar en það. Fyrst ferðaðist ég alltaf með strætó en síðustu ár nær eingöngu á eigin bíl.Í morgun setti ég næstum persónulegt met. Ég hef aðeins einu sinni verið lengur í skólann en í morgun. Metið er síðan í janúar/febrúar 1999, þá lagði ég af stað 7:55 og var kominn inn í Verzló klukkan 8:50, 55 mínútum seinna, þrátt fyrir að hafa farið "efri leiðina" sem þá var ennþá fljótari. Í morgun lagði ég hinsvegar af stað 7:55, skuttlaði systur minni í skólann, sem tefur mig ekki nema um í mesta lagi 3 mín. og kom mér svo fyrir í bílalestinni sem náði inn að kirkjugarðinum í Hafnarfirði (það gerist sárasjaldan). Ég kom í skólann 8:45, 50 mínútum eftir að ég lagði af stað. Frá kirkjugarðinum í Hafnarfirði setti ég tvisvar í 2. gír, annars var það gírgangur í fyrsta.
Það þýðir að þar sem leiðin er rétt um 10 km. að meðalhraðinn á leiðinni hafi verið 12 km/klst. Það er góður skokkhraði.
Agust skrifaði 21.02.03 11:49
Flokkun: Daglegt líf