febrúar 19, 2003

Friedman, Freedom Fries og ferðaviðvaranir

Ég hef mikil dálæti á pistlum Tómasar Friedman. Undanfarið höfum við þó ekki verið sammála í nokkrum atriðum. Hann segir innrás "réttlætanlega" en bara ekki einsog Bush-stjórnin er að vinna að málunum. Ég sé ekki "réttmætið" en virði hinsvegar skoðun hans fyrir það að hann er enginn já-maður og gagnrýnir Bush-stjórnina m.a. óspart í pistli í dag, Tell the Truth.

Norður-Karólínu búum er ekki fisjað saman. Nú eru þeir hættir að borða franskar kartöflur og borða þess í stað "freedom fries". Franskar eru líka eitthvað skildar Frakklandi og Frökkum og einsog allir góðir menn vita, þá eru Frakkar (og "gamla Evrópa") helv. aumingjar sem eru á móti stríði og vinir Saddams!

Út í alvarlegri hluti - UK citizens told to leave Iraq. Í þessari frétt segir frá því að bresk yfirvöld hafa varað alla Breta frá því að ferðast um Írak og helst forða sér frá Kúveit séu þeir þar. M.a.s. flestum sendiráðsstarfsmönnum er frjálst að flýja land á öruggari mið. Sömu sögu er að segja af Ísrael og hernumdu svæðunum. Bretum er ráðlagt frá því að ferðast um Ísrael og að koma sér frá hernumdu svæðunum "á meðan ferðaleiðir eru enn opnar".
Það er hinsvegar áhyggjuefni þegar ríkisstjórnir nota svona yfirlýsingar í hreinum pólitískum tilgangi. Það var t.d. merkilegt að stuttu fyrir fyrirhuguð mótmæli gegn stríði í Bandaríkjunum var hættuástandið hækkað í "appelsínugult ástand". Daginn eftir að mótmælin voru gengin yfir var aftur komið á "gult ástand", m.ö.o. ekki yfirvofandi hætta ríkjandi lengur. Ekki það að ég sé að segja að þetta sé eitthvað áróðursbragð. Aðeins að þegar svona viðvaranir eru notaðar í pólitískum tilgangi grefur það undan trúverðugleika þeirra - og þeirra sem gefa þær út.
Fyrirboði um að styttist í innrás? Erfitt að neita því.
Agust skrifaði 19.02.03 23:42

Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd