febrúar 10, 2003
Hr. Hnerri
Hr. Hnerri
Ég er búinn að vera fullur af kvefi um helgina og það virðist vera að ágerast frekar en hitt :-(Kannski ég ætti að sætta mig við að ég sé veikur, en ekki bara þykjast og vera að vinna á fullu. Ég er búinn að vera að síðan 8 í morgun. Fór í próf í Markaðsfræði 2 og gekk það eins við var að búast. Kunni (að því er mér a.m.k. fannst) bókina utanað enda stutt og ansi skemmtileg bók.
Svo er ég búinn að vera að vinna að verkefnum hérna heima síðan í morgun og má ekkert vera að því að leika aumingja með kvef. Nóg að gera þessa dagana, enda febrúar og mars ein allsherjar törn, og svo tekur prófatörn við þar á eftir.
Því situr Hr. Hnerri bara með sveittan skallann og hamrar á tölvuna.
Agust skrifaði 10.02.03 15:49
Flokkun: Daglegt líf