febrúar 16, 2003

Sunnudagur

Leiðinlegasti dagur vikunnar. Eitthvað til að blaða í með kaffinu, meðan veðrið herjar á gluggann:
The Price We Pay: tveir sérfræðingar meta kostnaðinn við innrás í Írak, 127-682 milljarða dollara.
Peking Duct Tape: Friedman hefur skrifað nokkra pistla undanfarið sem ég hef ekki verið sammála, en þarna kemur hann með góðan punkt, hvers vegna eru Kínverjar ekki að beita sér meira í diplómatískum þrýstingi á Saddam og Kim?
The Venus Trap: Dowd - "The secretary of state had said the Security Council session with Hans Blix and Mohamed ElBaradei would be "the moment of truth" for Iraq. But it turned into the St. Valentine's Day massacre of America."
Annars þoli ég ekki að hafa svona tight schedule. Mig langar t.d. að lesa urmul af (oft á tíðum mjög löngum) greinum. Einsog t.d. þessa: Unspeakable Conversations. Ég ætla hinsvegar ekki að gera mér það, sem ég hef gert alltof oft í vetur, að lesa sunnudagsblað og magasínið í New York Times fram undir mánudagsmorgun, þegar ég hef ekki komist í að lesa það fyrr en seint á sunnudagskvöldi. Svefn er bara of verðmætur þessa dagana.

Síðasta vika var ansi strembin, ekki var kvef og hausverkur að bæta það. Var veikur um síðustu helgi og í upphafi vikunnar. Barðist svo við hausverk með tilheyrandi einbeitingarleysi þegar ég þurfti á allri einbeitingu á að halda. Setti persónulegt met í paratabsáti.
Á föstudaginn náði ég að klára tölfræðiverkefnið sem ég vann í vikunni og hljóp upp á skrifstofu að skila. Var tveimur mínútum of seinn að skila (var að drífa mig svo mikið á milli hæða að ég hljóp óvart einhvern saklausan tölvunarfræðinema niður á göngunum). Þarf að semja við kennarann um afslátt á frádráttinn fyrir að skila of seint.
Eftir að hafa komið að lokuðum dyrum á skrifstofunni dreif ég mig inn í Samskip í vísindaferð. Þetta var ein besta vísindaferðin sem ég hef farið í og var fólk svo áhugasamt með spurningar í fyrirlestrinum að tíu mínútur fóru í spurningar áður en sá sem flutti fyrirlesturinn um fyrirtækið gat byrjað á glærunum sínum. Samskip komu vel út úr þessu sem áhugavert fyrirtæki í hraðri uppbyggingu.
Svo fór ég heim og mig snyrti, um fötin skipti og fór svo í Valintínusarpartý til Bjarna&Unnar. Það var fínt. Fór reyndar að spá í hvort ég væri á góðri leið að verða einn af þessum óþolandi mönnum sem tala sífellt um vinnuna sína, þar sem ég einhverra hluta vegna þurfti að þreyta fólk á tali um markaðssetningu bjórtegunda (þó ég sé ekki að markaðssetja neinn bjór, þá er makaðsfræði það sem ég er hugsa mest um þessa dagana).
Hvað um það, ég lét hjartalagaða dópið alveg vera í partýinu og komst klakklaust heim til mín og steinsofnaði um leið. Í gær kom ég svo ýmsu í verk, þó nær engu af því hafi verið það sem ég ætlaði mér að koma í verk um helgina. Svona er þetta.
Í gær hafði líka Ármann pjakkur samband við mig. Lét mig vita að ef einhver ókunnug stelpa hringdi í mig, þá væri það líklegast vegna þess að hann hafi látið hana hafa símanúmerið mitt. Að vonum brást ég ekki vel við þessari framtakssemi hans í match-making tilraunum hans. Stelpan hefur hinsvegar ekkert hringt... sem ég veit ekki hvort er gott eða slæmt :\
Í dag er ég svo að reyna að ráðast á verkefnalistann. Hef svo verið enn duglegri að muna eftir hlutum sem vantar á listann, þannig schedulinn er að verða vel útfylltur.
Svo ætlaði ég mér að fara á framhaldsnámskeið í arabískunni í mars og apríl (sem nær fram í fyrri prófavikuna) og verður það frekar strembið, svo framarlega sem ég ætla að taka þetta alvarlega og nýta þetta námskeið almennilega. Ég var líka að taka það saman í huganum að það stefnir í að þetta Mið-Austurlanda hobbý mitt er búið að kosta mig circa 100 þús. kall síðasta árið. Eins gott að maður á sér ekki mörg hobbý.
Það verður þó ekki annað sagt en að ég sé að mestu upptekinn við áhugaverð verkefni þessa dagana. Þannig nóg af blaðri, back to work!
Agust skrifaði 16.02.03 15:35

Flokkun: Daglegt líf