febrúar 15, 2003
"Við segjum fréttir"
Ég var að fletta Fréttablaðinu í dag.Þar segir m.a. frá tveimur dómum. Maður fékk 15 mánuði fyrir nauðgun á Eldborgarhátíðinni. Annar fékk tveggja ára dóm fyrir að smygla 30 kg. af hassi (tveir fengu minni dóma fyrir aðild, einnig voru tveir Spánverjar dæmdir í 3 ára fangelsi í Barcelona).
Jón Axel er víst hættur hjá Norðurljósum. Hann er að læra viðskiptafræði í HR, þó sagt sé í fréttinni að hann stundi sitt nám við HÍ (algjört aukaatriði, en samt).
Tannlæknar eru hættir að hafa bakvakt á nóttinni. Þetta er fréttir fyrir mér. Ég hef aldrei heyrt það fyrr að tannlæknir séu með vakt á nóttinni.
Einhver amerísk kona var dæmd fyrir morð á manni sínum. Hún ók yfir hann þegar hún komst að því að hann hélt fram hjá. Hún sagði hafa viljað valda honum "andlegum þjáningum"... ha?
Svo er eytt heillri opnu í "bloggið". Zzzzzzzzzz... Þetta virðist vera hið fullkomna umræðuefni fyrir uppfyllingarefni.
Sjálfur lít ég á mig sem einn af þeim sem hafa bæði tekið þátt og fylgst með þróun bloggsins. Í mínum huga er þetta fyrir löngu (á tímakvarða tækninýjunga) hætt að vera "fyrirbæri". Það er þannig lagað séð nýtt form en engin "bylting" samt í slíkum skilningi... rétt einsog tölvupósturinn sem var nýtt form, með nýja möguleika og e.t.v. nýja menningu - hann var hinsvegar engin ný uppfinning (nema tæknilega hliðin), engin "bylting", því fólk hefur skrifast á frá því í fornöld.
Internetið er bylting, bloggið er nýtt form, sem gerir venjulegu fólki kleift að skrifa á netið instantly. Það er orðið í dag það útbreitt og svo ólíkur hópur sem bloggar að þetta er hætt að vera eitthvað "fyrirbæri" sem þarf að fjalla um, ekki frekar en tölvupósturinn - sem mér finnst persónulega mun merkilegra fyrirbæri, enda mun útbreiddari, meira notaður og mikilvægari í lífi fólks.
Ég verð samt að viðurkenna, að ég hef furðað mig á því að aldrei er talað við neinn af "gömlu bloggurunum" þegar þessar uppfyllingargreinar eru skrifaðar. Katrín.is og Salvör eru líklegast oftast búnar að koma fram sem bloggarar (enda svosem skiljanlegt), en mjög oft er rætt við bloggara sem varna eru búnir að slíta blogg-skónum [fimmaur dagsins].
Kannski þeir hafi verið beðnir en beðist undan viðtali. Þannig myndi ég líka bregðast við ef væri til mín leitað (sem hefur ekki verið gert). Reyndar eru eftirlifandi bloggarar á þriðja ári afskaplega fáir, svona þegar ég hugsa út í það. Því er þetta kannski ekki skrítið. Engu að síður, þeir menn sem ég tengi við blogg (og eru enn bloggandi) eru t.d. Tommi og GummiJóh.
Við lítillega eftirgrennslan kemur það á daginn að höfundur greinarinnar í Fréttablaðinu bloggar sjálfur, einsog svo margir aðrir sem hafa skrifað um blogg í blöð og tímarit. Einsog svo margir sem hafa skrifað um blogg í blöð og tímarit virðist hann aðallega hafa rætt við málkunnuga menn sem blogga.
Þetta er nú meiri leiðindarfærslan, en hérna þetta er nokkuð áhugavert: DIY Washington terror threat style
Agust skrifaði 15.02.03 21:19
Flokkun: Fréttir , Internetið