maí 24, 2003
MovableType
Ég er virkilega farinn að fíla þetta kerfi :-)
Posted by Agust at
12:27 EH
Djö.
Þetta er bara ekki að ganga.
Hvernig á eiginlega að vera hægt að færa færslur úr Blogger yfir í þetta kerfi?? Ég fylgi leiðbeiningunum en það bara virkar ekki.
Arg!!
Posted by Agust at
04:14 FH
|
Comments (3)
MT
Eftir þó nokkuð vesen - og dygga aðstoð
Más - tókst mér að setja upp MT á sörvernum mínum.
MT-prufan er hér.
Posted by Agust at
02:16 FH
maí 12, 2003
Glæpur og refsing
Ég var að fá fjöldapóst í dag, þar sem fólk er kvatt til að skrifa undir bænaskjal til breskra yfirvalda, til að reyna að koma í veg fyrir að morðingjum James Bulger verði sleppt.
Bréfið hljóðar svona:
Do you remember February 1993 when a young 3 year old was taken from a shopping mall in Liverpool by two 10-year-old boys. Jamie Bulger walked away from his mother for only a second and Jon Venables took his hand and led him out of the mall with his friend Robert Thompson. They took Jamie on a walk for over 2 and a half miles, along the way stopping every now and again to torture the poor little boy who was crying constantly for his mommy. Finally they stopped at a railway track where they brutally kicked him, threw stones at him, rubbed paint in his eyes and pushed batteries up his anus. It was actually worse than this... What these two boys did was so horrendous that Jamie's mother was forbidden to identify his body.
They then left his beaten small body on the tracks so a train could run him over to hide the mess they had created. These two boys, even being boys, understood what they did was wrong, hence trying to make it look like an accident. This week Lady Justice Butler-Sloss has awarded the two boys anonymity for the rest of their lives when they leave custody with new identities. We cannot let this happen. They will also leave early this year only serving just over half of their sentence. One paper even stated that Robert may go on to University. They are getting away with their crime. They disgustingly and violently took Jamie's life away - in return they get a new life. Please read it carefully... then add your name at the end... and send it to everyone you can! Please add your name and location to the list and send it to friends and family. Please copy this e-mail (highlight text, right click, copy and paste into a new email) instead of forwarding so we do not get arrows at the beginning of the sentences. If you are the 220th person to sign, please forward this e-mail to cust.ser.cs@gtnet.gov.uk and attention it to Lady Justice Butler-Sloss. Then start the list over again and send to your friends and family.
The Love-Bug virus took less that 72 hours to reach the world. I hope this one does as well. We need to protect our family and friends from creatures like Robert and Jon. One day they may be living next to you and your small children, without your knowledge. If Robert and Jon could be so evil at 10 years old, imagine what they could do as adults!
Ég hreinlega fann mig knúinn til að svara þessu og sendi því þessa hugleiðingu sem "reply to all".
Sæl og fyrirgefið fjöldapóstinn, ég bara varð að fá að kommenta á þetta bréf.
Mál James litla Bulger er eitt af hinum eftirminnilegustu sem ég man eftir og í sjálfu sér með þeim ógeðfelldari sem maður hefur nokkurn tímann heyrt um. Ekki aðeins vegna þess hve hrottalegt, miskunnarlaust og ómannlegt morðið var, heldur vegna þess að morðingjarnir voru tveir 10 ára strákar.
Lýsingin á morðinu lætur mann ekki ósnortinn. Þvílíkur viðbjóður og maður skilur hreinlega ekki hvernig þetta getur gerst.
Í Bretlandi hefur verið umræða um nýtt lagafrumvart Blunkett, innanríkisráðherra, sem hefur m.a. í för með sér að morð á börnum "involving sexual or sadistic conduct" þýðir automatískt lífstíðarfangelsi.
(Sjá t.d. http://www.dailytelegraph.co.uk/news/main.jhtml?xml=/news/2003/05/07/nlife107.xml&sSheet=/news/2003/05/07/ ixhome.html og http://news.independent.co.uk/uk/legal/story.jsp?story=404158)
Nú er hægt að færa góð rök gegn lífstíðarfangelsi sem slíku, nema þá e.t.v. í algjörum undantekningartilfellum. Það er einnig automatíkin við þessa lífstíðardóma sem fer fyrir brjóstið á líberalistum.
En einsog þetta "keðjubréf" ber vott um, þá er þrýstingur á stjórnvöld töluverður. Fólk vill "réttlæti" en spurningin er hinsvegar hvort það sé "réttlæti" í því fólgið að loka 10 ára börn inni til eilífðar? Hver er þá tilgangurinn með réttarkerfinu? Er það endurhæfing/betrun, að loka hættulegt fólk inni, hefnd eða hvað? Ef við gerum ekki ráð fyrir að fólk geti mögulega bætt sig (sem lífstíðardómur hlýtur að ganga út frá, annars væri hann væntanlega ekki til lífstíðar), hvað erum við þá að segja um fangelsiskerfið? Sumum er ekki treystandi að vera á meðal fólks, psychopathar sem eru stórhættulegir. Við lokum þá ekki í fangelsun heldur vistum þá á þar til gerðum stofnunum. Hvers vegna? Vegna þess að við verðum að virða líf þessara einstaklinga, af virðingu við okkur sjálf. Af nákvæmlega sömu ástæðu og við (vonandi öll) viljum ekki pyntingar og aftökur á glæpamönnum.
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, í von um að eitthvert ykkar nenni þá kannski að lesa þetta. Ég bið ykkur samt að hugleiða þetta aðeins, nú þegar þið hafið lesið "keðjubréfið", sem var nú ástæðan fyrir þessari hugleiðingu minni. Það er afskaplega auðvelt að rísa upp á afturlappirnar og heimta hörku og hefndir þegar alvarlegir, hrottafengnir glæpir eru annars vegar. Við megum hinsvegar ekki gleyma okkur í hefndarþorstanum og hugleiða á hvaða forsendum við viljum byggja okkar samfélag. Harðari refsingar skila litlu sem engu og hafa í sumum tilfellum þveröfug áhrif. Auðvitað viljum við að einstaklingur sem brýtur af sér þurfi að taka afleiðingum gjörða sinna. Aftur á móti spyr ég mig hvort það að loka 10 ára drengi inni til æviloka sé refsing sem við getum skrifað undir (og það í orðsins fyllstu merkingu í þetta skiptið). Ef við trúum ekki á betrun og "annan séns", hvað erum við þá í raun að segja? Hvers vegna erum við þá yfirhöfuð að hafa fyrir því að halda úti öllum þessum fangelsum? Hvers vegna skjótum ekki bara þessar "skepnur", einfalt og ódýrt, eitt skot í hnakkann, bang - búið. Kínverjar hafa valið þá "lausn". Við vitum líka á hvaða leveli mannréttindi eru í Kína.
Með kveðju,
Ágúst Flygenring
Þar fyrir utan er hægt að færa ýmis "praktísk" rök gegn þessu bréfi. Drengirnir, sem eru um tvítugt í dag, eru að sjálfsögðu betur settir sem einstaklingar úti í þjóðfélaginu heldur en lokaðir inni það sem eftir er. Það er ekki einsog það sé verið að hleypa þeim út til að endurtaka leikinn, þvert á móti ættu þeir að vera undir meira eftirliti en annað fólk. Þeir fá ný nöfn, því öðruvísi gætu þeir ekki fengið að lifa "eðlilegu" lífi. Réttir aðilar vita aftur á móti hverjir þeir eru.
Fyrir mér er það glæpur að loka fólk inni til eilífðar, sé ekki um að ræða einstaklinga sem hafa verið úrskurðaðir geðsjúkir, ekki ábyrgir gjörða sinna, og slíka einstaklinga á að vista á þar til gerðum stofnunum en ekki í fangelsum.
Athugasemdir
Leiðrétting: Jón Hákon hinn sálfræðimenntaði var að benda mér á að notkun mín á
psychopathy væri röng. Réttara væri, m.v. það sem ég var að meina, að tala um
geðklofa. Þessu er hér með komið á framfæri, ég breytti aftur á móti ekki textanum, þar sem þetta er tekið beint upp úr e-mail sem ég sendi.
Viðbót: Glöggur lesandi benti mér á
þessa síðu, þar sem upplýsingar eru um málið. Þar kemur fram að drengjunum var sleppt í júní 2001. Ég var þess reyndar fullviss um að það hefði verið fyrir tæpu ári en þá var einhver umræða um þetta líka í gangi. Ætli þetta mál sé ekki einsog Guðmundar- og Geirfinnsmálin í tengslum við endurupptökur mála á Íslandi, Bulger-morðið mun fylgja bresku þjóðinni næstu áratugi og alltaf verða rifjað upp þegar umræðan kemur að refsingu ungra glæpamanna/morðingja.
Posted by Agust at
10:24 EH
|
Comments (0)
apríl 14, 2003
Niðurstaða Afstöðu.net
Skemmtilegt test á
Afstaða.net.
Posted by Agust at
03:33 EH
|
Comments (0)
mars 31, 2003
Kort af Írak

Fyrir þá sem vilja skoða kort af Írak er alveg ógrynni af þeim
hér. Merkilegt nokk að þetta er Bókasafn Texas-háskóla sem hefur sankað þessu saman. Fullt af áhugaverðum kortum þarna.
Posted by Agust at
11:14 EH
|
Comments (0)
mars 22, 2003
Galdra-blogg?
Skv.
frétt Mbl er sá sem kennir kúrsinn í Háskóla Íslands um blogg vorið 2004 Matthías Viðar Sæmundsson. Hann hefur verið þekktastur fyrir að vera sérfróður um galdra á Íslandi fram að þessu (einsog sjá má á
heimasíðu hans). Eftir því sem ég kemst næst bloggar Matthías Viðar ekki en var/er ritstjóri
Kistan.is (
src).
Ég held að maður verði að smygla sér inn á fyrirlestra hjá honum næsta vor, svona fyrir forvitnissakir. Hinn sjálfhverfi ég finnst einsog þarna sé verið að grufla í einhverju sem ég er hluti af/á hluta í.
Posted by Agust at
06:06 EH
febrúar 21, 2003
You've been Googled
Hvernig byggir maður upp 2 milljarða brand án þess að auglýsa fyrir krónu?
The Making Of A $2 Billion Brand (Forbes Mag.)
Önnur frétt um Google, eða öllu heldur Blogger, frá Forbes:
Blogging By Wireless. Nú verður hægt að blogga í gegnum sms.
Að sjálfsögðu var fjallað um kaup Google á Blogger í vikunni:
Google Goes Blog-Crazy
Posted by Agust at
10:11 EH
febrúar 15, 2003
"Við segjum fréttir"
Ég var að fletta
Fréttablaðinu í dag.
Þar segir m.a. frá tveimur dómum. Maður fékk 15 mánuði fyrir nauðgun á Eldborgarhátíðinni. Annar fékk tveggja ára dóm fyrir að smygla 30 kg. af hassi (tveir fengu minni dóma fyrir aðild, einnig voru tveir Spánverjar dæmdir í 3 ára fangelsi í Barcelona).
Jón Axel er víst hættur hjá Norðurljósum. Hann er að læra viðskiptafræði í HR, þó sagt sé í fréttinni að hann stundi sitt nám við HÍ (algjört aukaatriði, en samt).
Tannlæknar eru hættir að hafa bakvakt á nóttinni. Þetta er fréttir fyrir mér. Ég hef aldrei heyrt það fyrr að tannlæknir séu með vakt á nóttinni.
Einhver amerísk kona var dæmd fyrir morð á manni sínum.
Hún ók yfir hann þegar hún komst að því að hann hélt fram hjá. Hún sagði hafa viljað valda honum "
andlegum þjáningum"... ha?
Svo er eytt heillri opnu í "bloggið". Zzzzzzzzzz... Þetta virðist vera hið fullkomna umræðuefni fyrir uppfyllingarefni.
Sjálfur lít ég á mig sem einn af þeim sem hafa bæði tekið þátt og fylgst með þróun bloggsins. Í mínum huga er þetta fyrir löngu (á tímakvarða tækninýjunga) hætt
að vera "fyrirbæri". Það er þannig lagað séð nýtt form en engin "bylting" samt í slíkum skilningi... rétt einsog tölvupósturinn sem var nýtt form, með nýja möguleika og e.t.v. nýja menningu - hann var hinsvegar engin ný uppfinning (nema tæknilega hliðin), engin "bylting", því fólk hefur skrifast á frá því í fornöld.
Internetið er bylting, bloggið er nýtt form, sem gerir venjulegu fólki kleift að skrifa á netið instantly. Það er orðið í dag það útbreitt og svo ólíkur hópur sem bloggar að þetta er hætt að vera eitthvað "fyrirbæri" sem þarf að fjalla um, ekki frekar en tölvupósturinn - sem mér finnst persónulega mun merkilegra fyrirbæri, enda mun útbreiddari, meira notaður og mikilvægari í lífi fólks.
Ég verð samt að viðurkenna, að ég hef furðað mig á því að aldrei er talað við neinn af "gömlu bloggurunum" þegar þessar uppfyllingargreinar eru skrifaðar.
Katrín.is og
Salvör eru líklegast oftast búnar að koma fram sem bloggarar (enda svosem skiljanlegt), en mjög oft er rætt við bloggara sem varna eru búnir að slíta blogg-skónum [fimmaur dagsins].
Kannski þeir hafi verið beðnir en beðist undan viðtali. Þannig myndi ég líka bregðast við ef væri til mín leitað (sem hefur ekki verið gert). Reyndar eru eftirlifandi bloggarar á þriðja ári afskaplega fáir, svona þegar ég hugsa út í það. Því er þetta kannski ekki skrítið. Engu að síður, þeir menn sem ég tengi við blogg (og eru enn bloggandi) eru t.d.
Tommi og
GummiJóh.
Við lítillega eftirgrennslan kemur það á daginn að höfundur greinarinnar í Fréttablaðinu
bloggar sjálfur, einsog svo margir aðrir sem hafa skrifað um blogg í blöð og tímarit. Einsog svo margir sem hafa skrifað um blogg í blöð og tímarit virðist hann aðallega hafa rætt við málkunnuga menn sem blogga.
Þetta er nú meiri leiðindarfærslan, en hérna þetta er nokkuð áhugavert:
DIY Washington terror threat style
Posted by Agust at
09:19 EH
maí 04, 2000
Það er naumast, í morgun sendi ég 11 diggum vinum og kunningjum póst þess efnis að þetta blogg mitt væri komið í gang og farið að feta fyrstu skrefin.
Nú, fimm klukkustundum síðar eru 20 gestir komnir á síðuna og m.a.s. 1 villtur útlendingur. Síðan hefur líka fengið sína fyrstu tenginu utanaðkomandi,
Björgvin hrekkjusvín er maðurinn á bak við hana og fær hann þakkir fyrir það, það er greinilega fleiri mönnum í prófalestri sem leiðist
lesturinn og blogga þess í stað. Alltaf gott að vita að maður er ekki einn:)
En tíminn líður, þýskan bíður, verða að þjóta!
Posted by Agust at
03:43 EH
Jæja...
Jæja, klukkan 3:17 í tölvunni og Leonard Cohen diskurinn búinn að syngja sitt síðasta í þriðja sinn í röð. Ég er orðinn alltof þreyttur, þarf að vakna til þýskunáms í fyrramálið og sé ekki fram á mikinn árangur ef ég næ mér ekki í nokkurra klukkutíma svefn.
Þetta blogg er algjör draumur í dós! Ég hvet alla (sér í lagi Sigríði Reynisdóttur) til að fá sér blogg. Ef þú óskar eftir nánari upplýsingum um bloggið þá er bara eitt að gera: smell sér á
blogger.com!! Einfalt, fljótlegt, þægilegt. Sumir setja upp rosa síðu í hringum þetta blogg sitt, t.d.
Björgvin og
Geir sem eru mennirnir á bak við hrekkjusvin.is enda þekktir fyrir að vera örgustu hrekkjusvín, eða eitthvað! Hvað um það, þeir eru einmitt íhlaupakennarar í
Verzló en það er einmitt skólinn minn. Þar læri ég m.a. þýsku einsog fram kom. Þýskuprófið er einmitt á föstudaginn og ég er þess vegna að fara að sofa til að vakna til að læra undir það. Af hverju er ég að segja ykkur þetta, jú vegna þess að þetta blogg virðist ná ágætum tökum á manni, þannig ég hvet alla þá, um leið og ég hvet alla til að kynna sér blogg, sem hafa hug á að setja upp bloggsíðu að gera það EFTIR prófin, þegar nægur tími er til að gleyma sér algjörlega við þetta.
P.S...
Aðeins er hægt að setja upp blogg á ftp-server, ég notast við þjónustu þess ágæta fyrirtækis
tripod.com sem er hluti af
lycos.com-veldinu. Bara svona svo að örugglega allt sé á hreinu, þá kostar bloggið ekki krónu og er eina skilyrðið að þú setjir blogger-lógóið á síðuna einhver staðar, hún er neðst á þessari síðu minni og með að smella á hana lendið þið á
blogger.com...
góða nótt!
Posted by Agust at
03:23 FH
Alltaf jafngaman að búa á Íslandi! Var að uppgvöta það að tíminn á blogginu hjá mér er 1 klst. í plús, þ.e.a.s. klukkan eitt er hún tvö á bloggernum. Þetta er að sjálfsögðu út af sumartímaruglinu, þar sem okkar skaðræðisland hefur ekki sumartíma (síðan sextíuogeitthvað) þá þurfum við vesælir Íslendingar að breyta öllum klukkum einu sinni á ári, þ.e.a.s. þeim sem eru það "fullkomnar" að þær breyta sér sjálfar. Ef þetta er ekki gert getur það valdið misskilningi og óþægindum, nokkuð sem framleiðendur tölvubúnaðar hvers konar, hvort sem það er í fartölvu eða faxtæki, ætluðu sér að koma í veg fyrir með því að útbúa tækin með þeim hætti að þau breyta tímanum sjálf þegar svo ber undir. En þökk sé sérstöðumaníu íslensku þjóðarinnar þá er nú ekki svo að við getum notið þessa tækniundurs sem sjálfstillingin er, einsog örfáar þjóðir á borð við, að mig minnir, Alaska (ef þjóð skal kalla), Argentína og fyrrv. Sovésk ríki (enda yfirleitt á -istan), og gott ef ekki Japan er svona spes líka. En talandi um spes tíma, Íran og Afganistan, að mig minnir, hafa einmitt tímabelti sem er x klst og 30 mín. frá GMT, m.ö.o. þeir eru á milli tveggja tímabelta, furðulegir þessir íslamsklerkar, finnst ykkur ekki. En tími svefnsins er löngu kominn, svona eiga menn ekki að haga sér í prófum, en gera þó!
Posted by Agust at
01:42 FH
Nú er ég búinn að stela css skjalinu sem Sverrir Jónsson stud. oecon. útbjó fyrir
Bókasafn V.Í.
Nú er það spurningin: virkar þetta þegar ég er búinn að fikta í því??
Posted by Agust at
01:30 FH
Hér kemur annað innskot, bara svona til að prufa.
Fyrr var oft í koti kátt,
krakkar léku saman,
Posted by Agust at
01:09 FH
4. maí skollinn á og klukkan að ganga eitt að nótt... Ágúst gerist
blogger.
Posted by Agust at
12:52 FH