maí 11, 2003

Það er aðeins einn Hannes

Hannes kallað viðmælanda sinn í Silfrinu "kaffihúsaspeking" sem sé ekki í einum tengslum við íslenskan raunveruleika. Svo þegar viðmælandinn bregst við því að benda á að HHG sé opinber starfsmaður, þá bregst Hannes (að sjálfsögðu) hinn versti við og segir þetta týpískt fyrir "persónulegar árásir" Samfylkingarinnar.

Það væri óskandi að allir í íslenskri pólitík kynnu sig jafn vel og væru jafn kurteisir og lausir við persónuleg hælbit einsog Hannes Hólmsteinn.

Hver annar en Hannes Hólmsteinn Gissurarson?
Posted by Agust at 09:45 EH

1. þm Reykjavíkur-norður

Össur Skaphéðinsson 1. þ.m. Reykjavíkur-norður. Hvað næst? Sigrar Birgitta Eurovision?
Fáránlegt. Hræðilegt.

Athyglisvert að bera saman tölurnar milli RvkN og RvkS. Nokkur munur þar á milli.
Posted by Agust at 03:05 FH

maí 02, 2003

Að tapa áttahundruð sætum

Í bresku sveitastjórnakosningunum í gær tapaði Labour um 800 sætum. Íhaldsmenn unnu aftur á móti um 500 sæti og fengu flest atkvæði, 32% (sumir segja 35%) á móti 30% Labour. Iain Duncan Smith þykist eiga eitthvað í þessum sigri en svo er ekki, kjósendur voru fyrst og fremst að refsa Labour fyrir Íraksmálið og kjörsókn var mjög dræm, innan við 40%. Lib.Dems hefur aldrei gengið betur með 30%. Meðal þeirra borga sem Labour tapaði voru Birmingham, Bristol, Coventry og Exeter en í Birmingham er eitt hæsta hlutfall íbúa múslimar í Bretlandi.
Í Burnley, þar sem kynþáttaóeirðir áttu sér stað fyrir nokkrum misserum, náði British National Party að verða næststærsti flokkurinn í borgarstjórn. BNP náði sætum í nokkrum borgum og bæjum í Norður-Englandi og m.a.s. á einum stað í N-London.
Í kosningum til skoska þingsins var sigurvegari kvöldsins Tommy Sheridan, átrúnaðargoð Stefáns Pálssonar, og Skoskir sósíalistar en þeir fengu fimm þingsæti í stað eins. Græningjar unnu líka á en þeir bættu líka miklu við sig í sveitastjórnarkosingum um allt Bretland.
Sjá líka: Vote 2003 at-a-glance (BBC).
Posted by Agust at 05:43 EH | Comments (0)

apríl 29, 2003

Brjóstagjöf og barnaklám

Stundum verð ég algjörlega orðlaus. Það eina sem mér dettur í hug er only in America! Breast-feeding pix kiddie porn? (Unnur benti á).

Tvær aðrar, en gjörólíkar, fréttir sem vöktu athygli mína í gær:
Glaxo to Cut Price of AIDS Drug Used in Africa
Italian opposition in flap over flag
Posted by Agust at 09:03 EH | Comments (0)

apríl 27, 2003

Nokkrar fréttir úr nýjasta METimes

Chalabi a fraudster. Chalabi, besti vinur Washington í Írak, er - einsog margoft hefur komið fram - langt í frá hreinn pappír.

Mubarak steps into the fray. Hér má lesa um hvernig tókst að tryggja Mahmoud Abbas sem forsætisráðherra Palestínu stjórnarinnar með þrýstingi frá Egyptum o.fl. Díllinn er að Arafat fær að halda nokkrum völdum á bakvið tjöldin.

Human rights group criticises US over children detained at Guantanamo Cuba.
Juveniles among Guantanamo prisoners. "Those under 18 represent "less than half a dozen" of the 660 held at Guantanamo, a spokesman for the joint military task force running the prison operation said." Það skiptir náttúrulega engu máli, enda kemur engum öðrum við en bandarískum stjórnvöldum hverjum þau halda í Guantanamo og hverjum ekki. Þannig skiptið ykkur ekki af því sem ykkur kemur ekki við og hana nú!

Lebanon's new government risks national unity. Nýja ríkisstjórnin í Líbanon er án þátttöku Maróníta sem eru ca. 15% þjóðarinnar (hef ekki nákv. tölu á reiðum höndum). Það hefur alltaf staðið til hjá mér að kynna mér betur sögu Líbanons. Vonandi að það komist í verk með sumrinu.

Education reform critical for the Middle East. Sannarlega engin ný sannindi, enda eitt fjögurra atriða sem brýnast er að bæta úr í Mið-Austurlöndum skv. Arab Human Development Report í fyrra.

Shiite pilgrimage signals moderation towards US.
Pilgrimage historic amid scenes of protest.
Pilgrimage continues for Iraqi Shiites deported to Iran.

Svo vil ég benda á þessa úttekt frá MEMRI: Iran's U.S. Policy After the Fall of Baghdad: Khamenei's Hostility Versus Rafsanjani's Pragmatism
Posted by Agust at 03:30 EH

apríl 17, 2003

Viðbrögð al-Qaeda við falli Bagdad

"With guerilla warfare, the Americans were defeated in Vietnam and the Soviets were defeated in Afghanistan. This is the method that expelled the direct Crusader colonialism from most of the Muslim lands, with Algeria the most well known. We still see how this method stopped Jewish immigration to Palestine, and caused reverse immigration of Jews from Palestine. The successful attempts of dealing defeat to invaders using guerilla warfare are many, and we will not expound on them. However, these attempts have proven that the most effective method for the materially weak against the strong is guerilla warfare..."
Þetta stóð m.a. á síðu al-Qaeda (sem ekki er hægt hægt að linka á, því henni er alltaf fljótlega lokað og slóðin breytist á nokkra daga fresti) 9. apríl, eftir að Bagdad var fallin.
Sjá nánar: MEMRI.
Posted by Agust at 04:08 EH

Typpi

Mér finnst pistill Andra Óttarssonar, Jafnrétti kynfæranna, góður. Á svipuðum nótum og stutt hugleiðing sem ég skrifaði fyrir rúmu ári í tengslum við myndina Tillsammans.

Merkilegt að þetta skuli hafa verið bannað. Aftur á móti var ekkert sagt við því þegar Egill Sæbjörnsson fróaði sér fyrir framan vídjókameru á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Allt í þágu listarinnar. Typpaleikhúsið er aftur á móti óæðra art form í augum íslensku lögreglunnar (dómsmálaráðuneytið leiðrétti þá vitleysu). Merkilegt.
Posted by Agust at 12:39 FH | Comments (0)

apríl 15, 2003

Fyrirsagnir, þinn eigin stríðsherra og amerísk tómatsósa

Nú er fyrirsögn fréttastofu RÚV "Átökin í Írak" í sjónvarpsfréttunum. Áður var það "Innrásin í Írak". Prentútgáfa Morgunblaðsins talar enn um "Stríð í Írak". Nú er fyrirsöngnin "After Saddam" bæði á CNN og Sky News. Áður var það "War On Iraq" hjá CNN en "War In Iraq" hjá Sky. Sama fyrirsögnin var í dag á BBC minnir mig "Iraq - War". Enn er talað um "War On Iraq" á enskri útgáfu al-Jazeera.
Fréttamönnum Sjónvarpsins er bent á að fæðingarbær Abrahams heitir Úr, ekki Ur, sbr. 11. kafla 1. Mósebókar (arabískur ritháttur: alef-va-ra).

Það er ekki laust við að manni verði óglatt að lesa þessa frétt um að nú sé hægt að fá sér Bagdad sem umhverfi Command and Conquer stríðsleiki.

Af innlendum vettvangi er það einna helst, utan frétta af atkvæðauppboðinu í vor, að Ástþór Magnússon mætti fyrir dómara í dag. Hann neitaði að fá verjanda og sagðist ekki ætla að vinna með honum, þegar honum var skipaður verjandi. Ekki var honum skipaður geðlæknir að svo stöddu.
Posted by Agust at 08:39 EH

Glötuð menningarverðmæti

Dr. Magnús Þ. Bernharðsson, kennari í nútímasögu Mið-Austurlanda og sérfræðingur í sögu Íraks, skrifar pistil í bandaríska dagblaðið Newsday í dag: [Grieving Over Loss of Civilian]...and Cultural Life in Iraq
Newsday þykir frekar íhaldssamt en birti pistil Magnúsar án athugasemda á Op-Ed-síðu sinni. Pistillinn fjallar um hina ægilegu eyðileggingu sem átti sér stað í Bagdad og aðgerðaleysi bandaríska hersins, sem þó sá ástæðu til að standa vörð um olíumálaráðuneytið og skjölin sem þar eru geymd. Þjóðminjasafnið, sem hefur (hafði) að geyma ómetanleg menningarverðmæti frá öllum fornu stórveldunum sem byggðu Mesapótemíu, var rænt og lagt í rúst. Kveikt var í ríkisbókasafninu og ómælanlegt magn skjala og upplýsinga glötuðust einnig annars staðar. Bandaríkjamenn bjuggust við þessu - og gerðu ekkert til að koma í veg fyrir þetta. Olíumálaráðuneytið varð aftur á móti ekki fyrir tjóni.
Posted by Agust at 01:48 EH | Comments (0)

apríl 10, 2003

Corcorde 1969/76-2003

Í dag er greint frá því að dagar Concorde flugvélanna er taldir. Það kemur svosem ekkert verulega á óvart. BBC greinir frá, Concorde grounded for good.
BBC minnist einnig allra milljarðanna af bresku og frönsku almannafé sem fóru í verkefnið á sjöunda og áttunda áratugnum og hvernig flugvélarnar hafa í raun aldrei náð að standa undir sér - og hvers vegna flugvélar miða að því að koma fólki sem ódýrast á milli staða, en ekki á sem skemmstum tíma, Why economists don't fly Concorde.
Posted by Agust at 01:01 EH | Comments (0)

apríl 09, 2003

Oh no!

Þetta voru viðbrögð fréttaskýrenda áðan þegar bandarískir hermenn settu bandaríska fánann yfir höfuðið á styttu af Saddam Hussein sem þeir voru að rífa niður með stórum skriðdreka. Fljótlega var fáninn fjarlægður og Íraki sást veifa íraska fánanum á toppi bandaríska skriðdrekans.
Fréttaskýrendurnir áttu ekki orð yfir þetta framferði, sem er þó dæmigert fyrir Bandaríkjamenn í Írak. Hvernig eiga Írakar að túlka svona fánasýningar öðruvísi en sem "við eigum pleisið" yfirlýsingu. Auðvelt fyrir okkur Vesturlandabúa að kjósa að túlka slíkt á annan veg, ef við viljum - en fyrir Íraka er þetta a.m.k. ekki rétta leiðin til að vinna hug og hjörtu þeirra.

Áhugavert: dr. Jón Ormur svarar spurningum á Vísi.is um Írak og innrásina.
Posted by Agust at 02:45 EH

Óvinurinn

Two cameramen, working for Reuters and Spain's Telecinco, were killed when a shell hit the hotel which houses hundreds of foreign journalists. There is video footage of an American Abrams tank firing at the building.

Earlier, a correspondent for the Arabic TV broadcaster al-Jazeera was killed when US missiles hit the network's office. (src)
Nú hafa Bandaríkjamenn einbeitt sér að því að ráða niðurlögum hins raunverulega óvinar, frjálsra fréttamanna.
"A war zone is a dangerous place. We continue to warn news organisations... you should not be there"
- Pentagon spokeswoman Victoria Clark (src)
Í nóvember 2001 sprengdu Bandaríkjamenn höfuðstöðvar al-Jazeera í Kabúl (sem var þá mannlaus). Að sögn samtakanna Reporters Without Borders gætti sjónvarpsstöðin sín á að láta Bandaríkjamenn hafa nákvæmar upplýsingar um staðsetningu skrifstofu þeirra í Bagdad. Einsog áður sagði var hún sprengd með tveimur flugskeytum í dag.

Hvernig hægt er að skjóta á eina hótelið sem vitað er að hýsir nær alla erlenda fréttamenn í Bagdad, er með slíkum ólíkindum að það sýnir og sannar enn og aftur að með mjög góðum rökum er hægt að efast um hæfni bandaríska hersins í borgarhernaði.

Ég ætla ekki að halda því fram að árásirnar á hótel fréttamannanna og skrifstofu al-Jazeera hafi verið plönuð af Bandaríkjamönnum. Ég held frekar að þessi atvik sýni að það sem sagt hefur verið um bandaríska hermenn undanfarið af hernaðarsérfræðingum (utan Bandaríkjanna) er rétt.
Posted by Agust at 01:51 FH

apríl 04, 2003

Fréttaumfjöllun

Jæja, lesendur góðir, eruð þið ekki farin að sakna sífelldra vísana minna í New York Times? Hélt það líka.
Ég hef lítið sem ekkert lesið síðustu vikuna, en las þó áðan þessa grein, sem vert er að benda á:
The War Americans Don't See; Rami G. Khouri, sem er ritstjóri dagblaðs í Beirút, skrifar um fréttaumfjöllun arabískra dagblaða af innrásinni.
Posted by Agust at 10:01 EH

mars 27, 2003

Fréttamannafundur í Camp David

Það var athyglisvert að fylgjast með fréttamannafundi B&B í Camp David áðan.
Þar sá maður muninn á Bush og Blair þegar kemur að því að svara fyrir stríðið. Annar svaraði í 5 orða setningum, sem hann endurtók a.m.k. tvisvar sinnum og talaði einsog hann væri með enskukennslu í sjónvarpinu "ee-vil peo-ple". Hinn svaraði spurningum fréttamannanna.

Nú eru fréttaskýrendur að velta svörum Tonys Blair fyrir sér. Minna er talað um enskukennsluna.
Posted by Agust at 04:08 EH | Comments (0)

Mannfall

Skv. þessum lista hjá Jordan Times hafa 175 íraskir borgarar fallið í kjölfar innrásarinnar í landið. Engar trúverðugar upplýsingar hafa fengist um fall íraskra hermanna. 22 Bandaríkjamenn hafa fallið og 20 Bretar, auk tveggja sem er saknað úr herjum beggja aðila. Auk þess hafa fimm Jórdanir og fimm Sýrlendingar fallið í Írak.

Annars er það að frétta af "frelsuninni" að nýjustu fréttir herma að matvæladreifingin, þar sem hún er byrjuð, sé bara engan veginn að ganga, menn nota orð á borð við disaster: Convoy hijacked in aid 'disaster':
Posted by Agust at 11:54 FH

Svína- og kjúklingaskítur stuðlar að aukinni þorskgengd

Ekki á hverjum degi sem maður sér fyrirsögn á borð við þessa.
Posted by Agust at 11:18 FH

mars 26, 2003

Rúv fær hrós

Rúv fær hrós fyrir að hafa banner á skjánum hjá sér þegar fréttir eru sagðar frá Írak sem segir "Innrás í Írak". Það er algjört rangnefni að tala um "stríð" í Írak. Stríð lúta ákveðnum leikreglum. Fyrir 12 árum gerðu Írakar innrás í Kúveit og í kjölfarið var Persaflóastríðið háð, það var stríð.
Þetta er aðeins byggt á mínum skilningi á þessum hugtökum. Ég hef talað um innrás í þessari umræðu, ekki stríð. Ég legg til að aðrir geri hið sama.
Að sjálfsögðu hafa skoðanir mínar á innrásinni áhrif á mína orðanotkun. Stríð hljómar miklu "betur" en innrás og því í sjálfu sér eðlilegt að Bandaríkjamenn tali um war en ekki invasion.
Posted by Agust at 06:23 EH

Stríðsfangar

BBC hefur verið með ágæta umfjöllun um málefni stríðfanga. Í grein á BBC-vefnum, When are pictures of POWs propaganda?, er vitnað í breskan flugmann sem var í haldi Íraka fyrir 12 árum.
Although such images may be demoralising for the public back home, at least the families know their loved ones are still alive. "My family drew strange comfort from the fact that, even though I was in Iraqi hands, they knew I had survived the missile attack on my Tornado," Mr Nichol has said.
Ég skrifaði um málefni réttindalausu fanganna á Guantanamo fyrir rúmu ári síðan. Enn eru um 650 fangar þar og lúta sjálfsettum reglum hers þess lands sem vill kalla sig voldugasta lýðræðisríki heims.
Posted by Agust at 12:49 EH

mars 25, 2003

Nýjustu fréttir frá Mið-Afríku lýðveldinu

Einsog Sverrir Jakobsson er búinn að benda á, þá er það helst að frétta frá Mið-Afríku lýðveldinu að nýr forsætisráðherra, Abel Goumba, hefur verið settur í embætti.
Menn eru ekkert að leita að nýjum mönnum frekar en fyrri daginn í M-A.L. - Goumba var forsætisráðherra í einn mánuð 1959 en '57-'58 var hann fyrst varaforseti og svo líka forseti "ríkisráðsins" (Government Council). Hann hefur verið leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins Front Patriotique pour le Progrès. Hann er 76 ára.
Bozize foringi uppreisnarmannanna telst forseti frá 15. mars skv. mínum heimildum.
Hér má lesa ýmislegt um M-A.L.
Posted by Agust at 09:43 EH | Comments (0)

Basra

Nú hafa bandamenn gefist upp á að frelsa Basra og ætla bara að sprengja hana í loft upp í staðinn.
Munurinn er víst að hið fyrrnefnda er tímafrekari útgáfa af hinu síðarnefnda. Menn nenna þessu dúttli ekki lengur. Opinbera ástæðan fyrir þessari stefnubreytingu, að skilgreina Basra sem "lögmætt stríðssvæði", er að skaffa íbúunum vatn. Hvað ætli gerist þegar þeir fara að skaffa íbúunum mat líka?

Viðbót: Basra: Why they are not cheering, ágætis útlistun í styttra lagi eftir Paul Reynolds hjá BBC.
Posted by Agust at 09:15 FH

mars 22, 2003

Fréttaflutningur frá Írak

Vitið þið hvernig maður veit hvort maður er að horfa á bandaríska fréttastöð eða ekki?

Það vantar kvikmyndatónlistina undir myndunum á hinum stöðvunum ;-)
Posted by Agust at 11:58 FH

mars 21, 2003

Hentugur misskilningur

Polls show that the public is terribly confused about what's going on, so much so that some 40 percent believe that Saddam Hussein was personally involved in the Sept. 11 attacks. That's really scary. Rather than correct this misconception, the administration has gone out of its way to reinforce it.
- Bob Herbert í Ready for the Peace? í New York Times.
Posted by Agust at 12:37 FH

mars 20, 2003

Fríverslunarsamningar EFTA

Í nýjasta eintaki Stikla, vefrits viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, segir frá því að samkomulag hafi náðst milli Egypta og EFTA um viðskipti. Egyptar höfðu fram að þessu neitað að opna markaði sína fyrir fisk en í samningnum, sem gert er ráð fyrir að ljúka við fyrir áramót, náðist samkomulag um fisksölu til Egypta, en á móti þurftu EFTA-löndin að slaka á hindrunum með innflutning á landbúnaðarvörum frá Egyptalandi.
Á síðasta ári var seldur fiskur til Egyptalands frá Íslandi fyrir tæpar 50 milljónir en flutt inn frá Egyptalandi vörur fyrir 21 milljón.

Fyrir hafa fríverslunarsamningar verið gerðir við Ísrael, Palestínu (PA), Jórdaníu, Tyrkland og Marokkó. Eistrasaltsríkin þrjú, Pólland, Tékkland, Slóvakíu, Ungverjaland, Slóveníu, Króatíu, Búlgaríu, Rúmeníu og Makedóníu af gömlu Austantjaldslöndunum. Auk þess eru fríverslunarsamningar við Mexíkó (frá 2001) og Singapore (frá upphafi ársins í ár).
Þá hafa verið gerðar yfirlýsingar, "Declarations on Co-operation", við nokkur ríki: Alsír, Egyptaland (sem nú er verið að gera fríverslunarsamning við), GCC (Bahrein, Kúveit, Khatar, UAE, Óman og Saúdí-Arabía), Líbanon, Túnis, MERCOSUR-löndin (Brasilía, Uruguay, Paraguay og Argentína), Albaníu, Serbía og Svartfjallaland og Úkraínu.
Posted by Agust at 04:24 EH

mars 19, 2003

Skólabókardæmi um afrískt valdarán

Á BBC-vefnum er valdaránið í Mið-Afríku lýðveldinu kallað skólabókardæmi um afrískt valdarán.
Í sömu fréttaskýringu kemur m.a. fram að landið var nýlega að ganga í gegnum ferli til að fá lán hjá IMF/Alþjóðabankinn, sem hefði borgað opinberum starfsmönnum og hermönnum.
Talið er að það muni skapa mikla ólgu ef sannast að Tsjad (Chad) hafi bakkað upp uppreisnarmennina. Á götum Bangui, höfuðborgar Mið-Afríku lýðveldisins, hafa sést arabískutalandi (Tsjaddar) og hefur það skapað töluverða tortryggni.
Posted by Agust at 07:37 FH

mars 17, 2003

Fleiri fréttir

Það er fleira í fréttum en að innrás inn í Írak sé væntanleg í vikunni.

Valdaránið í Mið-Afríku lýðveldinu er gagnrýnt af Sambandi Afríkuríkja (á BBC-vefnum er prófíll fyrir Bozize sem stendur á bak við uppreisnina).

Palestínska þingið felldi tillögu Arafats um forsætisráðherra, 49 á móti 22. Tillagan hefði haldið meiri völdum hjá forsetanum (Arafat). Eftir sem áður hefur forsetinn (Arafat) vald yfir öryggissveitunum, getur skipað og rekið forsætisráðherrann og hefur lokaorðið um samninga við Ísrael. Forsætisráðherrann (Abbas/Abu Mazen) hefur innanríkismál á sinni könnu. Abbas vill ekki taka við djobbinu fyrr en skýrt er hvert vald hans verður.

Vinir og samverkafólk syrgja Rachel Corrie, bandaríski friðarsinninn sem lést í aðgerðum Ísraelshers, þegar hún reyndi að verja palestínska borgara og eigur þeirra (líkt og nokkrir Íslendingar hafa gert undanfarið). Minnir mann á, á sama tíma og Bandaríkin eru hötuð í Arabaheiminum, að þjóðir eru aðeins stór hópur einstaklinga, sem allir hafa sjálfstæðar skoðanir, viðhorf og lifa sjálfstæðu lífi.

Og svo fréttin sem mér finnst einna sérstökust: Hans Adam af Lúxemborg fær aukin völd.
Posted by Agust at 06:47 EH

mars 15, 2003

Uppreisn í Mið-Afríku lýðveldinu

Átök í Mið-Afríku lýðveldinu. Einhvern veginn hefur maður það á tilfinningunni að flestum sé nokk sama.
Þetta litla, 3,5 milljón manna ríki er eitt hið fátækasta í Afríku (PPP=$1300). Núverandi forseti, Patesse, hefur a.m.k. staðist sjö uppreisnartilraunir. Þetta virðist vera sú áttunda. Hann var kosinn forseti 1993 og er frá norðurhluta landsins. Ættflokkar frá suðurhluta landsins, sem eru betur menntaðir, höfðu fram að því haft töglin og halgdirnar í stjórnkerfi landsins og hefur Patesse ekki notið stuðnings meðal þeirra. Mikil ólga hefur verið í landinu og vakti það athygli þegar Khaddafi sendi her til Mið-Afríku lýðveldisins til að hjálpa Patesse til að ráða liðurlögum uppreisnar sem gerð var undir forystu fyrrverandi forseta landsins, Kolingba. Einnig hefur hann notið liðsinnis kongósku skæruliðasveitarinnar MLC undir forystu Jean-Pierre Bemba, sem hefur völd í norðurhluta L.l. Kongós.

Patesse var í útlegð á níunda áratugnum, sakaður um að hafa reynt að plotta gegn Kolingba, sem var forseti '81-'93. Patesse vann bæði Kolingba og David Dacko í kosningunum '93. Dacko steypti hinum sjálfkjörna keisara landsins, Jean-Bedel Bokassa, 1979 og var sjálfur forseti þangað til Kolingba kom honum frá völdum '81. Patesse aftur á móti var í stutta stund forsætisráðherra undir Bokassa 1976. Síðast var kosið 1999 og var Patesse þá sakaður um kosningasvindl.

Bokassa var talinn einn klikkaðasti týran Afríku í sinni tíð. Hann komst til valda 1965, þegar hann steypti fyrsta forseta landsins frá sjálfstæðinu 1960, David Dacko. Já, sá hinn sami Dacko og varð forseti þegar Bokassa var sjálfum steypt. 1962 gerði Dacko Mið-Afríku lýðveldið að eins flokks ríki og um svipað leyti fékk hann Bokassa til að verða yfirmann nýlega stofnaðs hers landsins. Bokassa hafði unnið sig upp í franska hernum, m.a. í Indókína og var kapteinn þegar hann var kallaður heim til að taka við hernum. Allt var komið í kaldakol 1965 og Bokassa steypti Dacko. Sjö árum síðar gerði hann sig að forseta til æviloka og 1977 lýsti hann sjálfan sig keisara og breytti nafni landsins í Mið-Afríku keisaradæmið. Keisarinn hafði mikið dálæti á Napóleon og bar krýningarathöfnin þess merki, sem kostaði ígildi þjóðartekna landsins það árið. Hann hirti mestmegnis allar útflutningstekjur landsins af demöntum og bjó í höll sem hæfði hvaða keisara sem er. Valery Giscard d'Estaing, fyrrv. Frakklandsforseti og núverandi ritstjóri stjórnarskrár ESB heimsótti keisarann reglulega til að fara í veiðiferðir með honum. Sú saga gekk fjöllunum hærra að Bokassa væri gefinn fyrir menn - þ.e.a.s. í matinn. Sagt var að pólitískir andstæðingar hans enduðu ósjaldan ofan í potti í eldhúsi keisarahallarinnar. "Mannætu-keisarinn" var hann m.a.s. stundum kallaður og segir sagan að leyfarnar af leiðtoga stjórnarandstöðunnar hafi fundist í stórri kæligeymslu keisarahallarinnar, þó áreiðanlegri heimildir hermi að það hafi verið kennari nokkur sem hafði verið saknað í nokkurn tíma. Tími Bokassa var timi ógnarstjórnar en þó ríkti nokkur stöðugleiki í landinu og var uppbygging infrastrúktúrs nokkur á tímabili.
Bokassa var steypt með aðstoð franskri fallhlífahersveit 1979. "Keisaralegi herinn" hleypti ekki af einu einasta skoti til varnar keisaranum. Nokkru áður hafði hinn keisaralegi her drepið um 100 skólabörn eftir skipun keisarans, eftir kvartanir yfir skólabúningum sem skylda var að kaupa af verksmiðju keisarans. Vakti það að vonum mikil viðbrögð. Hann flúði til Fílabeinsstrandarinnar og síðar Frakklands. Hann sneri aftur '86 og var hann dæmdur til dauða fyrir morðin á skólabörnunum og öðrum glæpum, en sýknaður af mannáti, sem miklar sögur voru um að hann stundaði. Dauðadóminum var breytt í fangelsisvist en honum var loks sleppt úr fangelsi '93 og að lokum lést hann þremur árum síðar, 75 ára að aldri.
Heimildir: BBC o.fl.

Uppfært 16/3: Svo virðist sem valdaránið hafi takist.
Posted by Agust at 07:23 EH

Snúinn aftur?

Mér finnst Ingólfur Bjarni Sigfússon, fréttamaður hjá Stöð 2/Bylgjunni, hafa ansi líka rödd og Þórir Guðmundsson, fyrrv. fréttamaður og núverandi Rauða kross-maður.
Það sem gerir þá enn líkari er að þeir eru að flytja nokkuð líkar fréttir, þ.e.a.s. af erlendum vettvangi.
Posted by Agust at 05:45 EH

mars 09, 2003

Móðganir

Þegar arabískir leiðtogar móðga hvern annan, þá er það ekki á neinu götumáli:
"You're a liar and your grave awaits you" sagði t.d. Khaddafi við Abdúllah prins í Sjarm al Sjeik (reyndar á arabísku, ekki ensku).
Ég held að andrúmsloftið í fundarsalnum hafi verið ansi magnað þegar þessir stórlaxar fóru að skiptast á svívirðingum.
Tilvitnunin er fengin úr frétt METimes.
Posted by Agust at 02:30 EH

mars 07, 2003

Baugur

Án þess að ég nenni að tjá mig frekar um Baugs-fárið, þá verð ég að segja að þessi frétt kemur mér ekki á óvart: Guðfinna og Þorgeir segja sig úr stjórn Baugs
Ég veit ekki til þess að Þorgeir í Odda hafi verið þekktur fyrir annað en að vera heiðarlegur (en harður) í viðskiptum og ekki fyrir neitt bullshit. Guðfinnu er að sjálfsögðu ekki sætt í stjórninni, verandi rektor háskóla sem leggur mikið upp úr siðareglum í viðskiptum sínum.
Það kemur svosem ekkert á óvart að Norðmaðurinn sitji áfram, enda eiga þeir frændur stóran hlut í fyrirtækinu og þurfa að standa vörð um hann (og ættu því aldeilis að vera ósáttir eftir atburði síðustu daga). Jóhannes situr auðvitað áfram, af skiljanlegum ástæðum.
Sá trúnaðarbrestur sem átt hefur sér stað innan stjórnarinnar, með birtingu Fréttablaðsins á upplýsingum úr samskiptum stjórnar, er mun athyglisverðari en sá lágpólitíski skrípaleikur sem mann hafa staðið í undanfarið.
Hvernig nokkuð traust eigi að vera borið til þeirra sem stóðu í þeim birtingum skil ég ekki. Ég skil allavega ekki hvernig nokkur með almenna siðgæðisvitund ætti að geta setið í stjórninni áfram. Því hefði það komið mér verulega á óvart ef þessi frétt af útgöngu Þorgeirs og Guðfinnu hefði ekki borist. Sér í lagi í ljósi þess hvaða einstaklingar eiga í hlut.

Skemmtileg tilviljun að nú hengir þessi frétt inni á Moggavefnum: Jón Ásgeir tekur sæti í stjórn Flugleiða
Posted by Agust at 05:33 EH

mars 04, 2003

Egypska afstaðan

Þetta eru fréttir, Egyptar virðast eftir allt ekki styðja "útlegðar-hugmyndina".
Posted by Agust at 10:20 EH

mars 02, 2003

Bókasafnið brennur Söguþekking Mbl-manna er

Söguþekking Mbl-manna er oft skemmtileg. Í frétt í dag segja þeir frá bruna í Bókasafninu í Alexandríu (hinu nýja), sem var opnar ekki alls fyrir löngu: "Eldur kom upp í hinu fornfræga Alexandríubókasafni í Alexandríu í Egyptalandi í dag. Fræðamiðstöðin var opnuð á ný í október." og svo "Safnið, sem er á 11 hæðum, var opnað á ný í október eftir endurbætur sem stóðu í 20 ár og kostuðu 200 milljónir dala."
Það er ekki hægt að skilja fréttina öðruvísi en að þarna hafi verið opnað eftir endurbætur "Bókasafnið [sem] var ein fyrsta miðstöð námsfúsra manna í heimi og var sett á fót eftir að Alexander hinn mikli stofnaði borg á Miðjarðarhafsströnd Egyptalands árið 332 fyrir Krist."
Stórbruni var í Bókasafninu í Alexandríu árið 48 f.Kr. í átökum Kleópötru, sem var studd af Júlíusi Sesari, við bróður hennar. Þá brunnu einhvers staðar á bilinu 40-400 þús. rit (heimildum ber ekki saman). Markús Antoníus gaf 200 þús. rit til safnsins skömmu síðar. Á þriðju öld brann það svo aftur í innanríkisdeilum.
Það er hinsvegar ekkert launungamál að Bókasafnið í Alexandríu hið fyrra var endanlega brennt undir lok 4. aldar af biskupnum í Alexandríu í kringum 400, Theófílusi að nafni. Nafnið bar hann með rentu því ástæðan fyrir brunanum var að í því voru geymdar "heiðnar bækur". Hann var þarna að bregðast við tilskipun Theódósíusar keisara í Róm sem árið 391 bannaði öll ókristin (heiðin) trúarbrögð. Nokkrum árum síðar var síðasti "alexandríski fræðimaðurinn" myrtur og var því ekkert bókasafn af þessari stærðargráðu í Alexandríu frá fimmtu öld og fram á okkar daga. Hið nýja bókasafn er reist með tilvísun í hið fornfræga safn, þó auðvitað muni það aldrei öðlast þá sérstöðu sem það hafði.
Heimildir: Bibalex.gov.eg o.fl.
Posted by Agust at 03:13 EH

febrúar 26, 2003

Snjókast í Jerúsalem

Tvær áhugaverðar greinar af BBC-vefnum:
Analysis: Power Americana by Paul Reynolds
Lesson from history: 1955 Baghdad Pact by Gerald Butt

Svo verð ég að segja að þessar myndir eru magnaðar: Snow engulfs Mid-East. Að sjá al-Aqsa moskuna með snjó á hvolfþakinu í bakgrunninn, börn í snjókasti í forgrunninn... alveg hreint ótrúlegt. Annars er snjókoma á svæðinu ekki eins óalgeng og maður skyldi ætla. Mér skylst að síðast hafi fólk leikið sér í snjónum í Jerúsalem fyrir þremur árum síðan. Aftur á móti er þetta mesta fannfergið á svæðinu í hálfa öld.
Posted by Agust at 11:54 EH

febrúar 22, 2003

Sprengingin í NY

Skv. Platts, fréttaveitu olíuiðnaðarins, þá brunnu um 100 þús. tunnur í sprengingunni í NY í dag. Tveir fórust og einn slasaðist. Töluvert eignatjón varð. Í yfirlýsingu ExxonMobile segir að sprengingin átti sér stað þegar prammi (barge) var að afferma cargo skip. 100 þús. tunnur eru um 14 þús. tonn (16 milljón lítrar). Það er umtalsvert magn en engu að síður smotterí þegar það er t.d. sett í það samhengi að mér reiknast til að þetta sé framleiðsla Saúdi-Araba í 18 mínútur!
Endu er eignatjónið meira en tapaða olían. Mér reiknast til að m.v. barges-verðið í Ameríku (NYH) síðustu vikur á unld. gasoline þá séu þessi 14 þús. tonn ekki nema rétt 4 milljóna dala virði.
Mesti skaðinn er auðvitað að tveir menn létust.
Posted by Agust at 12:47 FH

febrúar 17, 2003

Aðgangsmiðar í miðborgina

Þetta er helv. magnað:
Driving in London Is Pound Foolish
London wakes up to congestion charge
Livingstone predicts 'difficult few days' as congestion charge begins
Protests but no chaos as road charge begins
How the congestion charge works
Why Ken's charge will do damage for years to come
Nú kostar £5 að fá að aka um miðborg Lundúna í einkabíl. Eftir tíu á kvöldin tvöfaldast gjaldið. Þetta á að minnka umferð um 10-15%. Sektin fyrir að svíkjast undan gjaldinu er £120. Blurry'ell!
Posted by Agust at 10:43 FH

febrúar 15, 2003

"Við segjum fréttir"

Ég var að fletta Fréttablaðinu í dag.
Þar segir m.a. frá tveimur dómum. Maður fékk 15 mánuði fyrir nauðgun á Eldborgarhátíðinni. Annar fékk tveggja ára dóm fyrir að smygla 30 kg. af hassi (tveir fengu minni dóma fyrir aðild, einnig voru tveir Spánverjar dæmdir í 3 ára fangelsi í Barcelona).
Jón Axel er víst hættur hjá Norðurljósum. Hann er að læra viðskiptafræði í HR, þó sagt sé í fréttinni að hann stundi sitt nám við HÍ (algjört aukaatriði, en samt).
Tannlæknar eru hættir að hafa bakvakt á nóttinni. Þetta er fréttir fyrir mér. Ég hef aldrei heyrt það fyrr að tannlæknir séu með vakt á nóttinni.
Einhver amerísk kona var dæmd fyrir morð á manni sínum. Hún ók yfir hann þegar hún komst að því að hann hélt fram hjá. Hún sagði hafa viljað valda honum "andlegum þjáningum"... ha?

Svo er eytt heillri opnu í "bloggið". Zzzzzzzzzz... Þetta virðist vera hið fullkomna umræðuefni fyrir uppfyllingarefni.
Sjálfur lít ég á mig sem einn af þeim sem hafa bæði tekið þátt og fylgst með þróun bloggsins. Í mínum huga er þetta fyrir löngu (á tímakvarða tækninýjunga) hætt að vera "fyrirbæri". Það er þannig lagað séð nýtt form en engin "bylting" samt í slíkum skilningi... rétt einsog tölvupósturinn sem var nýtt form, með nýja möguleika og e.t.v. nýja menningu - hann var hinsvegar engin ný uppfinning (nema tæknilega hliðin), engin "bylting", því fólk hefur skrifast á frá því í fornöld.
Internetið er bylting, bloggið er nýtt form, sem gerir venjulegu fólki kleift að skrifa á netið instantly. Það er orðið í dag það útbreitt og svo ólíkur hópur sem bloggar að þetta er hætt að vera eitthvað "fyrirbæri" sem þarf að fjalla um, ekki frekar en tölvupósturinn - sem mér finnst persónulega mun merkilegra fyrirbæri, enda mun útbreiddari, meira notaður og mikilvægari í lífi fólks.
Ég verð samt að viðurkenna, að ég hef furðað mig á því að aldrei er talað við neinn af "gömlu bloggurunum" þegar þessar uppfyllingargreinar eru skrifaðar. Katrín.is og Salvör eru líklegast oftast búnar að koma fram sem bloggarar (enda svosem skiljanlegt), en mjög oft er rætt við bloggara sem varna eru búnir að slíta blogg-skónum [fimmaur dagsins].
Kannski þeir hafi verið beðnir en beðist undan viðtali. Þannig myndi ég líka bregðast við ef væri til mín leitað (sem hefur ekki verið gert). Reyndar eru eftirlifandi bloggarar á þriðja ári afskaplega fáir, svona þegar ég hugsa út í það. Því er þetta kannski ekki skrítið. Engu að síður, þeir menn sem ég tengi við blogg (og eru enn bloggandi) eru t.d. Tommi og GummiJóh.
Við lítillega eftirgrennslan kemur það á daginn að höfundur greinarinnar í Fréttablaðinu bloggar sjálfur, einsog svo margir aðrir sem hafa skrifað um blogg í blöð og tímarit. Einsog svo margir sem hafa skrifað um blogg í blöð og tímarit virðist hann aðallega hafa rætt við málkunnuga menn sem blogga.

Þetta er nú meiri leiðindarfærslan, en hérna þetta er nokkuð áhugavert: DIY Washington terror threat style
Posted by Agust at 09:19 EH

febrúar 12, 2003

Kynlífslyf fyrir konur

Skv. frétt á BBC-vefnum eru menn að þróa kynlífslyf, ekki ósvipað Viagra.
Grundvallarmunurinn á þessum tveimur lyfjum er þá sá að á meðan Viagra hefur áhrif á kynfæri karlanna, þá hefur "kvennalyfið" áhrif á heila konunnar.
Segir þetta ekki allt um muninn á kynjunum :-)
Posted by Agust at 08:35 EH