apríl 09, 2003
Oh no!
Þetta voru viðbrögð fréttaskýrenda áðan þegar bandarískir hermenn settu bandaríska fánann yfir höfuðið á styttu af Saddam Hussein sem þeir voru að rífa niður með stórum skriðdreka. Fljótlega var fáninn fjarlægður og Íraki sást veifa íraska fánanum á toppi bandaríska skriðdrekans.Fréttaskýrendurnir áttu ekki orð yfir þetta framferði, sem er þó dæmigert fyrir Bandaríkjamenn í Írak. Hvernig eiga Írakar að túlka svona fánasýningar öðruvísi en sem "við eigum pleisið" yfirlýsingu. Auðvelt fyrir okkur Vesturlandabúa að kjósa að túlka slíkt á annan veg, ef við viljum - en fyrir Íraka er þetta a.m.k. ekki rétta leiðin til að vinna hug og hjörtu þeirra.
Áhugavert: dr. Jón Ormur svarar spurningum á Vísi.is um Írak og innrásina.
Agust skrifaði 09.04.03 14:45
Flokkun: Fréttir , Mið-Austurlönd