febrúar 22, 2003
Sprengingin í NY
Skv. Platts, fréttaveitu olíuiðnaðarins, þá brunnu um 100 þús. tunnur í sprengingunni í NY í dag. Tveir fórust og einn slasaðist. Töluvert eignatjón varð. Í yfirlýsingu ExxonMobile segir að sprengingin átti sér stað þegar prammi (barge) var að afferma cargo skip. 100 þús. tunnur eru um 14 þús. tonn (16 milljón lítrar). Það er umtalsvert magn en engu að síður smotterí þegar það er t.d. sett í það samhengi að mér reiknast til að þetta sé framleiðsla Saúdi-Araba í 18 mínútur!Endu er eignatjónið meira en tapaða olían. Mér reiknast til að m.v. barges-verðið í Ameríku (NYH) síðustu vikur á unld. gasoline þá séu þessi 14 þús. tonn ekki nema rétt 4 milljóna dala virði.
Mesti skaðinn er auðvitað að tveir menn létust.
Agust skrifaði 22.02.03 00:47
Flokkun: Fréttir , Viðskipti