febrúar 26, 2003

Don't Worry, Be Happy

Já, það er ekki að ástæðulausu að ég spila núna Bobby McFarrin aftur og aftur. Í morgun var nefnilega tölfræðiprófinu ógurlega frestað um viku (kallast gálgafrestur). Það er mikill munur, en eftir sem áður: próf á fimmtudag og ritgerðarskil á föstudag.
Það sem er hinsvegar enn ánægjulegra er að það virðist eitthvað vera að birta til hjá mér í tölfræðinni, allavega tókst mér að skilja (nánast) allt tvo tíma í röð. Svo er ég sannfærður um að ég geti þetta allt saman með smá átaki - don't worry, be happy!
Ritgerðin er u.þ.b. hálfnuð - og nóg af efni eftir í kollinum á mér. Hún verður því vonandi ásættanleg, sem hefði aldrei tekist samhliða því að læra undir tölfræðipróf. Þess vegna segi ég aftur: don't worry, be happy.
Stefnumótunarprófið reynir vonandi bara á "heilbrigða bissnissskynsemi". Er svona circa hálfnaður með að læra undir það og vonandi verður ekki spurt út í nein smáatriði úr lesefninu eða eitthvað svoleiðis rugl. Ég hef svo mikla trú á kennaranum, sem er topp náungi, að ég hef engar stórar áhyggjur (þrátt fyrir að það virðist einhver einkunna-ógæfa vofa yfir mér eftir áramótin), ég á að kunna þetta - don't worry, be happy!
Heilsan virðist vera eitthvað að hökkta en ég held að það sé bara af svefnleysi og streitu. Þar sem tölfræðiprófið frestast ætti ég að ná kristlegri svefntíma og svo er bara að dæla í sig vítamínum - don't worry, be happy!

ps.
Á morgun er víst kosið í HÍ til stúdentaráðs. Sjálfur myndi ég kjósa Vöku, þá meira fyrir hópþrýsting en annað. Ég er voðalega feginn að í HR snúist hlutirnir um hagsmuni nemenda og einstaklinga en menn skipi sér ekki í fylkingar á móti hvorum öðrum. En einsog ég segi, ég myndi kjósa Vöku, enda Gulli, vinur minn, á lista þar. Ég veit að hann gerir það sem hann gerir af heilindum. Auk þess hef ég heyrt að Vaka hafi verið að gera góða hluti síðastliðið ár. Það er líka alltaf gott að fá nýja strauma inn þegar ákveðinn hópur hefur stjórnað of lengi með tilheyrandi stöðnun, einsog var með Rösvku.
Ég hef margoft lýst þeirri skoðun minni að mér finnst fyrirkomulagið á þessum kosningum vesturfrá asnalegt. Ógurleg (peninga- og) orkueyðsla sem fer í að berjast á einhverjum ímynduðum vígvelli, þegar það sem mestu máli skiptir, hagsmunir stúdenta, ætti að vera sameiginlegt markmið allra.
Engu að síður, áfram Vaka!
Agust skrifaði 26.02.03 00:57

Flokkun: Daglegt líf