febrúar 24, 2003
Heimildamynd um Grameen bankann
Ég mæli með að áhugasamir horfi á hollensku heimildamyndina Framfaraspor (Signature of Change) á RÚV kl. 20:50. Myndin fjallar um Grameen banka í Bangladesh sem lánar fátæklingum fé, allt niður í 1-2 dollara. Viðskiptavinir bankans eru nær eingöngu fátæklingar, mest konur. Mjög merkilegt.Ég heyrði af þessum tiltekna banka hjá Jóni Ormi, en fleiri slíkir bankar eru starfræktir víðsvegar um heiminn. Þessi þykir einkar vel heppnaður. Hann er líkt og svo margir aðrir sambærilegir bankar sem lána til fátæklinga, stofnaður af hugsjónamanni, prófessor Muhammad Yunus. Ég bíð því spenntur að sjá þessa mynd.
Agust skrifaði 24.02.03 18:47
Flokkun: Alþjóðavæðingin , Hagfræði , Stjórnmál , Viðskipti