febrúar 24, 2003

Heimildamynd um Grameen bankann

Ég mæli með að áhugasamir horfi á hollensku heimildamyndina Framfaraspor (Signature of Change) á RÚV kl. 20:50. Myndin fjallar um Grameen banka í Bangladesh sem lánar fátæklingum fé, allt niður í 1-2 dollara. Viðskiptavinir bankans eru nær eingöngu fátæklingar, mest konur. Mjög merkilegt.
Ég heyrði af þessum tiltekna banka hjá Jóni Ormi, en fleiri slíkir bankar eru starfræktir víðsvegar um heiminn. Þessi þykir einkar vel heppnaður. Hann er líkt og svo margir aðrir sambærilegir bankar sem lána til fátæklinga, stofnaður af hugsjónamanni, prófessor Muhammad Yunus. Ég bíð því spenntur að sjá þessa mynd.
Posted by Agust at 06:47 EH

febrúar 19, 2003

Írska ævintýrinu lokið?

Athyglisvert: Ireland, Once a Celtic Tiger, Slackens Its Stride
Posted by Agust at 10:20 EH

febrúar 10, 2003

Amerísk aðstoð 2004

Skv. þessari frétt MET er þetta meðal þess sem plön Bush-stjórnarinnar um erlenda aðstoð fyrir árið 2004 kveða á um (engan veginn tæmandi listi, aðeins valið úr það merkilega, heildarfjárhæðin er $28,5 milljarðar):
  • Ísrael: $2,1 milljarður í hernaðaraðstoð
  • Egyptaland: $1,3 milljarðar í hernaðaraðstoð
  • $150 million is set aside for the Middle East Partnership Initiative which seeks to promote "democratization and good governance in the Arab world".
  • Tyrkland: $200 milljónir til að hjálpa við að greiða skuldir. "The money for Turkey, which excludes military assistance, makes up 90 percent of the US aid package for all of Europe and Eurasia."
  • Palestína: $75 milljónir.
  • Jórdanía: $250 milljónir.
  • Líbanon: $32 milljónir.
  • Bahrein (sem hefur álíka tekjur per mann og S-Kórea): $25 milljónir.
  • Jemen: $15 milljónir í hernaðaraðstoð (2m. í fyrra).
  • $20 milljónir til friðargæslu á N-Írlandi og Kýpur.
  • Íraska stjórnarandstaðan fékk $25 milljónir í ár og í fyrra. 2004 er ekki gert ráð fyrir einu einasta centi. Vísbending?
  • Afganistan: $150 milljónir í byggingu infrastrúktúrs.
  • Pakistan: $200 milljónir.
  • Baráttan gegn AIDS/HIV: $450 milljónir.
  • Baráttan við S-Amerísk "anti-drug programs": $731 milljónir.
Það var og. Ef einhver aðstoð hefur verið veitt til prógramma sem er styðja frelsi kvenna til fóstureyðinga, þá er það alveg örugglega mistök og verða mjög líklega leiðrétt um leið og þau komast upp.
Posted by Agust at 08:56 EH