apríl 28, 2003
Fas femínista
Í tilefni þessara, þessara og þessara ummæla rakst ég á þennan "draum Gyðu".
Ég var búinn að heyra af þessu herópi Gyðu á stofnfundi Femínstafélagsins. Mín fyrstu viðbrögð við þessari sýn - og skoðun mín á þeim í dag - var fyrst og fremst svekkelsi. Ég er svekktur yfir því að þessi tegund femínisma skuli vera presenteruð af Femínistafélaginu. Það er mjög auðvelt að missa mestan tiltrúnað á félagið þegar maður heyrir að þetta er málflutningurinn.Ég spyr mig líka hverjum það þjónar að "virkja" þessa drauma Gyðu og stalla hennar. Það læðist að manni sá grunur að þessir draumar séu afleiðingar einhvers konar martraða sem konurnar hafa kynnst frá körlum. Þessi ótrúlega heift, þetta máttleysi sem birtist í þessum draumi hryggir mann. Því einsog ég segi, það læðist sá grunur að manni að sú sem á sér þennan draum hafi áður kynnst martröð.
Ég veit í sjálfu sér ekki hvort ég á að eyða nokkrum orðum í að lýsa því hvers þessi "draumur Gyðu" um Veru sem kallar út sérsveit Femínistafélagsins þegar henni er nauðgað og Freyju sem bragðbætir drykki aðkomudólga með sápu frá Frigg. Ég held ekki, því orðið dæma sig sjálf. Rétt einsog orð þeirra sem vilja skera undan nauðgurum eða grilla morðingja með hækkandi sól í rafmangsstólum. Raunar eiga síðarnefndu hóparnir það sameiginlegt, ólíkt "draumi Gyðu", að a.m.k. hluta þeirra virðir sönnunarbirgðina, sem virðist alveg ansi gengisfelld í drauminum.
Sem fyrr segir hryggir þessir draumur mig og svekkir. Mér finnst leitt að konur skuli beina reiði sinni og heift í garð einstaka karlmanna í að skipuleggja sérsveitir og sápuvopnaárásir. Ég vorkenni þessum konum fyrir að vinna ekki úr þessum tilfinningum sínum á uppbyggilegri hátt. Það svekkir mig líka að þetta sé það sem er í umræðunni tengt/hjá Femínistafélaginu, ég tel það ekki þeim til framdráttar.
- - - - - - - - - - - -
Annað en þó að litlu leyti tengt. Fyrir nokkru birtist lítið grein í Economist um fjögur þúsund manna (þar af tæpur helmingur háskólanemar) ráðstefnu Conservative Political Action Conference. Einkar athyglisverður félagsskapur, held að undirtitill greinarinnar segi allt sem segja þarf: Conservatives, off their leash, are a frightening bunch
Ágúst Flygenring
Agust skrifaði 28.04.03 20:49
Flokkun: Jafnréttismál
Comments
Skrifa comment