apríl 28, 2003
Fas femínista
Í tilefni
þessara,
þessara og
þessara ummæla rakst ég á þennan "
draum Gyðu".

Ég var búinn að heyra af þessu herópi Gyðu á stofnfundi Femínstafélagsins. Mín fyrstu viðbrögð við þessari sýn - og skoðun mín á þeim í dag - var fyrst og fremst svekkelsi. Ég er svekktur yfir því að þessi tegund
femínisma skuli vera presenteruð af Femínistafélaginu. Það er mjög auðvelt að missa mestan tiltrúnað á félagið þegar maður heyrir að þetta er
málflutningurinn.
Ég spyr mig líka hverjum það þjónar að "virkja" þessa
drauma Gyðu og stalla hennar. Það læðist að manni sá grunur að þessir draumar séu afleiðingar einhvers konar martraða sem konurnar hafa kynnst frá körlum. Þessi ótrúlega heift, þetta máttleysi sem birtist í þessum
draumi hryggir mann. Því einsog ég segi, það læðist sá grunur að manni að sú sem á sér þennan
draum hafi áður kynnst martröð.
Ég veit í sjálfu sér ekki hvort ég á að eyða nokkrum orðum í að lýsa því hvers þessi "draumur Gyðu" um Veru sem kallar út sérsveit Femínistafélagsins þegar henni er nauðgað og Freyju sem bragðbætir drykki aðkomudólga með sápu frá Frigg. Ég held ekki, því orðið dæma sig sjálf. Rétt einsog orð þeirra sem vilja skera undan nauðgurum eða grilla morðingja með hækkandi sól í rafmangsstólum. Raunar eiga síðarnefndu hóparnir það sameiginlegt, ólíkt "draumi Gyðu", að a.m.k. hluta þeirra virðir sönnunarbirgðina, sem virðist alveg ansi gengisfelld í
drauminum.
Sem fyrr segir hryggir þessir
draumur mig og svekkir. Mér finnst leitt að konur skuli beina
reiði sinni og heift í garð einstaka karlmanna í að skipuleggja sérsveitir og sápuvopnaárásir. Ég vorkenni þessum konum fyrir að vinna ekki úr þessum tilfinningum sínum á uppbyggilegri hátt. Það svekkir mig líka að þetta sé það sem er í umræðunni tengt/hjá Femínistafélaginu, ég tel það ekki þeim til framdráttar.
- - - - - - - - - - - -
Annað en þó að litlu leyti tengt. Fyrir nokkru birtist lítið grein í Economist um fjögur þúsund manna (þar af tæpur helmingur háskólanemar) ráðstefnu Conservative Political Action Conference. Einkar athyglisverður félagsskapur, held að undirtitill greinarinnar segi allt sem segja þarf:
Conservatives, off their leash, are a frightening bunch
Ágúst Flygenring
Posted by Agust at
08:49 EH
|
Comments (0)
apríl 17, 2003
Jafnrétti og jafnrétti
Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir hefur oft skrifað af viti um jafnréttismál. Ég hef oft lesið hugleiðingar hennar á ýmsum vettvangi um jafnrétti, femínisma og fleira í þeim dúr og fundist hún nálgast málin yfirleitt á mjög "heilbrigðan" hátt.
Þessi pistill eftir hana á Frelsi er engin utantekning,
Jafnrétti meðal jafnaðarmanna, þar sem hún segir m.a.:
Samfylkingin virðist sannfærð um að áhugi kynjanna á stjórnmálum sé jafn mikill og þá jafnframt að framboð af efnilegum stjórnmálamönnum af báðum kynjum sé ætíð nokkuð jafnt. En ég leyfi mér að efast um það í ljósi eigin reynslu af áhugaleysi kvenna á stjórnmálum. Mig grunar einmitt að kynjahlutföll á listum Sjálfstæðisflokksins endurspegli þennan mun, alveg eins hlutfall kynjanna sem gegna embættum formanna og varaformanna innan stjórna Ungra jafnaðarmanna. Persónulega þykir mér skynsamlegra að fara í kjölinn á hugsanlegum ástæðum þess að konur hafi minni áhuga á stjórnmálum en karlar, heldur en að reyna bara að jafna hlut þeirra kvenna og karla sem sitja á Alþingi.
Þetta segir ungur femínisti sem
starfaði áður innan Bríetar.
Svo bætir hún um betur í pistli á Tíkinni.is í dag,
Jöfnuður er ekki jafnrétti, þar sem hún segir m.a.:
Ég skilgreini jafnrétti aftur á móti sem jafnan rétt einstaklinganna fyrir lögum, og að einstaklingarnir séu metnir að verðleikum án þess að bakrunnsbreytur á borð við kynferði leiði til réttindaskerðingar. Ég hef engar staðreyndir til að styðja þá kenningu að ójöfn kynjahlutföll þýði sjálfkrafa að réttur þess kyns sem á hallar, hafi verið fótum troðinn. Komist einstaklingur hins vegar ekki áfram á eigin verðleikum, til dæmis á grundvelli kynferðis, standa lögin, dómstólarnir og réttarkerfið í heild honum til verndar. Þegar hins vegar reynt er að þvinga fram þróun í átt að jöfnum hlutföllum er hætta á að einstaklingarnir verði ekki metnir að verðleikum heldur einmitt af þessum bakrunnsbreytum.
Fyrst ég er farinn að vitna svona mikið í Helgu, er ekki úr vegi að vísa á einhvern skemmtilegasta pistil um femínisma sem ég hef lesið - og er einmitt eftir hana:
Æ, þetta helv.. jafnréttiskjaftæði
Posted by Agust at
01:29 EH
|
Comments (0)
Typpi
Mér finnst pistill Andra Óttarssonar,
Jafnrétti kynfæranna, góður. Á svipuðum nótum og
stutt hugleiðing sem ég skrifaði fyrir rúmu ári í tengslum við myndina Tillsammans.
Merkilegt að þetta skuli hafa verið bannað. Aftur á móti var ekkert sagt við því þegar
Egill Sæbjörnsson fróaði sér fyrir framan vídjókameru á Kjarvalsstöðum fyrir nokkrum árum. Allt í þágu listarinnar.
Typpaleikhúsið er aftur á móti óæðra art form í augum íslensku lögreglunnar (dómsmálaráðuneytið leiðrétti þá vitleysu). Merkilegt.
Posted by Agust at
12:39 FH
|
Comments (0)
mars 24, 2003
Stríðsfangar
Það var alveg með ólíkindum að hlusta á Rumsfeld (og Tommy Frank) í dag tala um meðferð Íraka á stríðsföngum. Hvernig á maður að taka mark á mönnum sem bera ábyrgð á
Guantanamo.
Posted by Agust at
06:35 EH
mars 16, 2003
Veikara kynið
"Það sem drepur þig ekki, styrkir þig," er þetta ekki haft eftir Nietzsche? Nokkuð til í þessu. Veit þó ekki hvort það hafi eitthvað með þetta að gera:
The Weaker Sex.
Þarna er rakið í örstuttu máli hvernig standi á því að þrátt fyrir að 15% líklegra sé að vísir að sveinfóstri verði til við getnað þá eru konur orðnar fleiri en karlar strax um miðjan fertugsaldurinn. Og ef út í það er farið, eru átta sinnum fleiri konur yfir 100 ára en karlar.
Sveinfóstur eru líklegri til að ná því ekki að fæðast, drengir eru líklegri til að hafa allt frá lit- og lesblindu til ofvirkni og taugasjúkdóma, unglingsstrákar eru líklegri til að farga sér, fara sér á voða og m.a.s. á efri árum eru karlmenn í meiri hættu að fara sér á voða.
Posted by Agust at
01:34 EH
febrúar 12, 2003
Kynlífslyf fyrir konur
Skv.
frétt á BBC-vefnum eru menn að þróa kynlífslyf, ekki ósvipað Viagra.
Grundvallarmunurinn á þessum tveimur lyfjum er þá sá að á meðan Viagra hefur áhrif á
kynfæri karlanna, þá hefur "kvennalyfið" áhrif á
heila konunnar.
Segir þetta ekki allt um muninn á kynjunum :-)
Posted by Agust at
08:35 EH
febrúar 11, 2003
Wax away
Ótrúlegt hvaða (mismerkilegu) vitneskju maður kemst að með því að hlusta á BBC World Service.
Í dag datt ég inn í einn af uppáhaldsþáttunum mínum á BBC,
Everywoman (á heimasíðu þáttarins má hlusta á hann á með Real Player). Eitt umræðuefnið þessa vikuna var
[...] we examine why so many women around the world are obsessed with hair removal...from the Brazilian bikini wax to the hair removing parties of Dubai...we go in pursuit of the perfect way to shave your body!

Jebb. Talað var um sögu háreyðingar kvenna, hvaða konur stunda þessa iðju og enn frekar hvaða konur stunda hana ekki. Rætt er við amerískan prófessor sem gerði könnun á þessu og hún segir frá niðurstöðum sínum... þið verðið að hlusta á þáttinn til að komast að þeim:) [Þessi hluti þáttarins byrjar á 10. mínútunni]
Rætt er við konu í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hún segir frá því hvernig heljarinnar ritual er í kringum það viku fyrir brúðkaupið að haldið er "hair removing party", þar sem konurnar í fjölskyldunni koma saman... siður sem þið skuluð bara kynna ykkur með að hlusta á þáttinn :)
Skv. sömu Dúbaíju eru karlar þar farnir að snoða sig á prívatstöðum en þá með aðstoð konunnar en ekki í partýum.
Um daginn var sýning á afraksri kúrs sem var samstarf HR og LHÍ. Þar hafði einn hópurinn gert línu "skapalóna" fyrir konur og vakti það næga athygli til að rata á síður
Orðlauss - kvenkyns tímarits.
Sértakar stofur veita konum (og sumar körlum) þessa snyrtingarþjónustu, líkt og hefðbundnar stofur þjónusta fólk um klippingu. Sums staðar er þetta fínn bissniss.
Skemmtilegt umræðu, finnst ykkur ekki? Allavega, alltaf lærir maður eitthvað nýtt með því að hlusta á BBC!
Posted by Agust at
08:15 EH