febrúar 11, 2003

Wax away

Ótrúlegt hvaða (mismerkilegu) vitneskju maður kemst að með því að hlusta á BBC World Service.
Í dag datt ég inn í einn af uppáhaldsþáttunum mínum á BBC, Everywoman (á heimasíðu þáttarins má hlusta á hann á með Real Player). Eitt umræðuefnið þessa vikuna var
[...] we examine why so many women around the world are obsessed with hair removal...from the Brazilian bikini wax to the hair removing parties of Dubai...we go in pursuit of the perfect way to shave your body!
Jebb. Talað var um sögu háreyðingar kvenna, hvaða konur stunda þessa iðju og enn frekar hvaða konur stunda hana ekki. Rætt er við amerískan prófessor sem gerði könnun á þessu og hún segir frá niðurstöðum sínum... þið verðið að hlusta á þáttinn til að komast að þeim:) [Þessi hluti þáttarins byrjar á 10. mínútunni]
Rætt er við konu í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hún segir frá því hvernig heljarinnar ritual er í kringum það viku fyrir brúðkaupið að haldið er "hair removing party", þar sem konurnar í fjölskyldunni koma saman... siður sem þið skuluð bara kynna ykkur með að hlusta á þáttinn :)
Skv. sömu Dúbaíju eru karlar þar farnir að snoða sig á prívatstöðum en þá með aðstoð konunnar en ekki í partýum.

Um daginn var sýning á afraksri kúrs sem var samstarf HR og LHÍ. Þar hafði einn hópurinn gert línu "skapalóna" fyrir konur og vakti það næga athygli til að rata á síður Orðlauss - kvenkyns tímarits.
Sértakar stofur veita konum (og sumar körlum) þessa snyrtingarþjónustu, líkt og hefðbundnar stofur þjónusta fólk um klippingu. Sums staðar er þetta fínn bissniss.

Skemmtilegt umræðu, finnst ykkur ekki? Allavega, alltaf lærir maður eitthvað nýtt með því að hlusta á BBC!
Agust skrifaði 11.02.03 20:15

Flokkun: Jafnréttismál