janúar 30, 2005
Góðir farþegar
Á leiðinni til London, á mánudaginn, var vitlaus spóla spiluð í vélinni. Í örfáar sekúndur var því arabíska spiluð í hátalarakerfi vélarinnar.Góðir farþegar, get ég fengið athygli ykkar, vinsamlegast.Kannski áttaði sig engin á því hvaða tungumál þetta var nema ég en mér fannst þetta hræðilega fyndið. Í fyrsta lagi þar sem ég var óbeint á leiðinni til Egyptalands (á endanum) og svo auðvitað að arabíska er opinbert tungumál flugræningja í hugum fólks.
Að öðru leyti gekk flugið til London vel fyrir sig. Sigga og Matti vinur hennar tóku svo á móti mér á Liverpool St. Station.
janúar 24, 2005
Veðurfréttir
Það verður hitabylgja í Kaíró í vikunni. 25 stiga hiti á fimmtudaginn (23 á miðviku- og föstudag).Síðan kem ég um helgina næstu og hitinn verður þá aftur fallinn í 18-19 stig. Og þetta eru allt hæsta hitastig yfir daginn (sem í Kaíró er yfirleitt síðdegis). Hitinn mun fara niður í 9 stig í morgunsárið í upphafi næstu viku. Morgnarnir eru ótrúlega kaldir.
Ekki aðeins að ég missi af hitakastinu í Kaíró heldur fæ ég sérdeilis kalt veður í London. Á morgun verður 1-2 stig, 4-6 stig dagana þar á eftir og upp í 9 gráður þegar ég fer á föstudaginn (hámarkshiti). Það verður aftur á móti næsturfrost (!) á þriðjudag og miðvikudag og litlu skárra hin kvöldin.
Kuldinn eltir mig. Er ekki nóg að ég er búinn að eyða 1/3 af tímanum mínum heima undanfarinn mánuð í rúminu vegna kvefs og hálsbólgu.
Það er eins gott að ég tek með mér sæng núna. Veitir ekki af í Kaírókuldanum.
Annars fer þetta að skána um miðjan febrúar og orðið mannsæmandi veður í mars.
janúar 06, 2005
Flug út
Búinn að kaupa flugmiða út. Flýg með Iceland Express í eftirmiðdaginn 24. jan, sem er mánudagur. Gisti hjá Siggu í London fram að föstudaginn 28/1, þegar ég flýg frá Heathrow klukkan hálf-fimm og lendi í Aþenu, já Aþenu, klukkan 10 að staðartíma (3 1/2 tíma flug). Flýg svo áfram með Olympic Airlines rétt fyrir eitt eftir miðnætti og tveimur tímum síðar lendi ég í Kaíró (aðfaranótt laugardagsins 29/1).Fyrir miðann, með öllu og öllu, mátti ég borga 146 pund.