maí 25, 2003

Sjálfsvígstíðni

Staðreyndir verða oftast áþreyfanlegri þegar þær eru settar í rétt samhengi.

Siggi pönk kemur með athyglisverða staðreynd í dagbókinni sinni í dag:
Afhverju hvíslumst við á um staðreyndir þess að á slysa- og bráðadeild Landspítalans í Fossvogi kemur að meðaltali ein sjálfsmorðstilraun á átta klukkustunda fresti. Og það eru bara þau sem plönin ganga ekki upp hjá.
Þarna er bara verið að tala um Lsp. í Fossvogi og þar með ekki öll tilfellin sem skráð eru úti á landi. Rosalega tala, sem samt kemur manni ekkert rosalega á óvart, því miður.
Agust skrifaði kl. 05:12 EH | Comments (0)

Draumurinn

Stebbi Páls skrifar um lokun draumsins:
Og hverjum hefur Júlli í Dramnum verið að selja sprútt? Unglingum undir lögaldri? Fullorðnu fólki eftir lokun í ríkinu? - Nei, þessir hópar kaupa sér áfengi með öðrum leiðum. Krakkarnir múta fullorðnum til að kaupa fyrir sig, en aðrir fá áfengi selt út af veitingastöðum.

Draumurinn hefur selt rónunum og ofdrykkjufólkinu sem fær ekki afgreiðslu annars staðar. Það leitar meðal annars í Drauminn af því að þar fær það að vera inni, ef það er til friðs. Það fær að hlýja sér þegar veðrið er leiðinlegt og það er komið fram við það af meiri virðingu en gerist og gengur annars staðar.

Hvað halda menn að vinnist með því að bösta Drauminn - að stöðva þessa sölumennsku sem þar hefur átt sér stað í allra vitorði í mörg ár? Halda menn kannski að rónarnir hætti að drekka? Eða að rauðsprittið fari eitthvað betur með þá?

Fyrir nokkrum misserum gengu löggan og borgin í það að loka Keisaranum. Mikil var undrun þeirra þegar í ljós kom að þótt Keisarinn hyrfi hættu viðskiptavinirnir ekki að vera til. Sumir þeirra römbuðu meira að segja niður í miðbæ þar sem þeir öngruðu menningarpakkið jafnvel ennþá meira með því að drekka á Austurvelli eða ég veit ekki hvað.
Ef rétt er hjá Stebba, með kúnnahópinn, er ég alveg sammála honum um, að þarna er rétttrúnaðarhugsunarhátturinn við völd. Ekki horft á heildarmyndina, heldur fókuserað á aðeins hluta af heildarmyndinni.

Lokun Keisarans var að margra mati mistök. Stundum þarf að líta framhjá smávægilegum misfellum, þegar meira skaði er unninn með að fara eftir lagabókstafnum.
Agust skrifaði kl. 04:33 EH | Comments (0)

Júróvisjón

Í gær horfði ég á Júróvisjón í fyrsta skiptið í mörg ár. Hef yfirleitt horft í mesta lagi á stigagjöfina.

Stigagjöfin er skemmtilegt fyrirbrigði - út frá félagsvísindalegu sjónarhorni. Grikkir gefa Kýpverjum, Portúgalir Spánverjum, Rússar Úkraínumönnum og Þjóðverjar Tyrkjum og Rússum.

Þrjú lög vöktu athygli mína og stóðu að mínu mati töluvert uppúr. Lögin frá Austurríki, Belgíu og Tyrklandi stóðu upp úr. Commercial lesbíurnar frá Rússlandi voru með leiðinlegt lag en ég missti af því í sjónvarpinu, heyrði það bara í útvarpinu. Hef heyrt t.A.t.U. lög sem eru fín. Þetta lag var bara leiðinlegt. Sem betur fer unnu þær ekki keppnina. Austurríska lagið var skemmtilegt, Belgíska var skemmtilegt semi-folk og svo var tyrkneska lagið með skemmtilegum austrænum áhrifum. Reyndar þegar ég heyrði það aftur í dag í útvarpinu var það ekki eins gott og í sjónvarpinu. Stendur ekki alveg jafn vel undir sér hvað það varðar. Það verður hinsvegar áhugavert að sjá hvernig Tyrkir munu spila úr keppninni á næsta ári.

Sjálfur fór ég aldrei þessu vant í "júróvisjónpartý", sem var fámennt en góðmennt. Þessi árlega keppni er einn stór brandari. Því miður brandari sem kostar Sjónvarpið og þar sem skattgreiðendur margar margar milljónir. Það sem við fáum aftur á móti út úr þessu eru 2-3 lög árlega sem hægt er að hlusta á og svo ein 20 sem eru misjafnlega léleg. Síðan getur maður hlegið að sumu, t.d. rúmenska laginu og sjóvinu sem því fylgdi og textanum hjá Lettunum. Rokkararnir frá Eistlandi sungu líka víst á ensku, þó ég fattaði það ekki fyrr en í miðju lagi, skyldi ekki framburðinn fyrr.
Agust skrifaði kl. 02:53 EH | Comments (2)

maí 24, 2003

Langdregnasta auglýsing í heimi

Ég er ekki frá því að ég hafi verið að horfa á einhverja allra langdregnustu auglýsingu sem ég hef séð.

"Lengsta auglýsing í heimi" frá Brimborg, svona fyrir þá sem átta sig ekki á því um hvaða auglýsingu ég er að tala.
Agust skrifaði kl. 07:00 EH | Comments (0)

MovableType

Ég er virkilega farinn að fíla þetta kerfi :-)
Agust skrifaði kl. 12:27 EH

Djö.

Þetta er bara ekki að ganga.

Hvernig á eiginlega að vera hægt að færa færslur úr Blogger yfir í þetta kerfi?? Ég fylgi leiðbeiningunum en það bara virkar ekki.

Arg!!
Agust skrifaði kl. 04:14 FH | Comments (3)

Fegurðarsamkeppnir

Er til eitthvað hallærislegra en það?

Jú, Júróvisjón!
Agust skrifaði kl. 03:12 FH | Comments (1)

MT

Eftir þó nokkuð vesen - og dygga aðstoð Más - tókst mér að setja upp MT á sörvernum mínum.

MT-prufan er hér.
Agust skrifaði kl. 02:16 FH

maí 22, 2003

Tíðindi

Ja hérna! Nú kom Davíð mér aldeilis á óvart. Dömpaði Sólveigu úr ríkisstjórn (sem er gott) og - stórtíðindin - Þorgerður Katrín verður menntamálaráðherra frá áramótum. Það eru auðvitað góðar fréttir.
Því miður verður Sturla áfram í ríkisstjórninni en maður getur ekki alltaf fengið allt.
Agust skrifaði kl. 06:33 EH | Comments (0)

Sushi og hausmælingarkeppni

Í gær Unnur og Bjarni mér í sushi. Ég hef aldrei áður smakkað sushi. Ég hef aldrei áður þorað. Sushi fyrir mér hefur verið svona u.þ.b. eina fæðutegundin sem ég hef hræðst að borða. Ég gæti gert langan lista yfir furðulegan mat sem ég hef ekki veigrað mér við að láta ofan í mig en sushi hefur einhvern veginn alltaf "hrætt" mig. Ég bara trúi ekki að hrár fiskur geti verið góður.


Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 12:17 FH | Comments (0)

maí 21, 2003

Ministry of Silly Walks

Maureen Dowd skrifar um mjög svo creepy prógramm hjá bandarískum yfirvöldum, Walk This Way. Menn ætla sér að geta greint eftirlýsta hryðjuverkamenn með því að skanna göngulag fólks og leita eftir "rétta göngulaginu" við leit að hryðjuverkamönnum. Já, þetta hljómar of lygilegt til að vera satt.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 05:40 EH | Comments (0)

Imperíalískt hlutverk

Tómas Friedman skrifar pistil í New York Times um sinnuleysi Bandaríkjamanna í Írak, Bored With Baghdad — Already.

Lesa áfram
Agust skrifaði kl. 05:02 EH | Comments (0)

maí 20, 2003

The Pink and the Black

Hin yndislega kaldhæðna Maureen Dowd skrifaði pistil í NYT um helgina, The Pink and the Black, þar sem hún ber saman nýjustu "strákamyndina" og nýjustu "stelpumyndina", því einsog hún orðar það sjálf "One thing that never changes, decade in and century out, is Hollywood's dishing up gender-specific dreamscapes".
At multiplexes this weekend, Keanu Reeves is on a quest to find out if he is The One. And Renée Zellweger is on a quest to find The One.

Mr. Reeves, as Neo, goes on a dark, violent odyssey where his strength and character are tested. Ms. Zellweger, as a cute blonde chasing a suave writer at Know, the magazine for men in the know, goes on a pink, fluffy odyssey where her wiles and allure are tested.
Svo undir lokin heimfærir hún Matrix "kúlleikann" yfir á Bush og hvernig atriðið... ræðan hans á flugmóðurskipinu var einsog klippt út úr Top Gun og fleira í þeim dúr.
Skemmtilegur pistill.
Agust skrifaði kl. 01:43 EH | Comments (0)

"Stuff happens"

America is the occupying power of Iraq. It has legal obligations, and one of them is to secure mass graves and not to simply dismiss looting, as Secretary of Defense Donald Rumsfeld did, with his shameful toss-off line: "Stuff happens." People expect more from us. The U.S. military executed its war plan with great efficiency and decency. For that, most Iraqis are grateful, and every American can be proud. But when it comes to securing the peace, either there was no plan, or those executing it simply did not have the manpower or know-how to pull it off.
- Thomas Friedman í New York Times (Two Right Feet)
Agust skrifaði kl. 01:28 EH | Comments (0)