febrúar 07, 2003
Hússein af Jórdaníu
Í dag eru fjögur ár liđin frá andláti Husseins konungs af Jórdaníu. Margir landsmenn sakna hans sárt og sumum ţykir hálf-enskur sonur hans vera full "vestrćnn" og ekki hafa nćgan skilning á "fólkinu/ćttflokkunum í landinu".Abdúllah II. má hinsvegar eiga ţađ, hann á glćsulegustu drottningu heims fyrir eiginkonu.
Jórdanía er ađ mörgu leyti mjög merkilegt land, í sögulegu, efnahagslegu og stjórnmálalegu tilliti. Hussein ibn Talal var ţar konungur í tćp 50 ár, var 17 ára pjakkur ţegar hann tók viđ af föđur sínum sem hafđi veriđ konungur í eitt ár en ţingiđ lét hann víkja vegna andlegrar vanheilsu. Afi hans, Abdúllah, var emírinn af Transjórdaníu frá 1921 til 1946, ţegar landiđ fékk fullt sjálfstćđi frá Bretum og var hann ţá konungurinn af Jórdaníu. Hann varđi Vesturbakkann í stríđinu 1948 og fékk venjulega til föstudagsbćna í al-Aqsa moskunni í Jerúsalem. Viđ slíkt tćkifćri í júlí '51 var hann myrtur af byssumanni. Hussein, sem var formlega gerđur konungur tćpum tveimur árum síđar, rétt slapp ţar sem kúla hćfđi metalíu/orđu sem hann bar.
Ţegar Hussein dó var hans minnst sem mikils diplómats og karismatísks leiđtoga lands síns. Hann var syrgđur af mörgum. Persónulega hafđi hann veriđ í dálćti hjá mér síđan ég var krakki og las um hann í einhverri bók. Ţar var Jórdaníu lýst sem "fátćka" Arabaríkinu, ţar sem engin olía finnst en samt var ţar konungur sem sýndi klókindi viđ stjórnun og reyndi ađ byggja upp landiđ (reyndar finnst fosfór í landinu og er hann helsta tekjulindin). Myndin í ţessari bók af Hussein var ţar sem hann sat ásamt bedúínahöfđingjum í fátćklegu umhverfi ásamt syni sínum (Abdúllah) og virtist vera gúddí gćji. Líka nafn landsins, Jórdanía, ţađ er eitthvađ svo ljóđrćnt. Ég man hvađ ég var vonsvikinn ţegar hann studdi Saddam í Persaflóastríđinu. Jórdanía fćr helming olíunnar sem landiđ notar (til raforkuframleiđslu) gefins frá Írökum, hinn helminginn fá Jórdanir á sérkjörum.
Abdúllah II. hafđi veriđ gerđur ađ krónprinsi af föđur sínum stuttu fyrir andlát hans. Fram ađ ţví hafđi Hassan prins, bróđir Husseins, veriđ nćsti erfingi krúnunnar. Nú tala sumir (eđa töluđu ađallega) um ađ hann sé leiđtogaefni Íraks post-Saddam. Ég hef persónulega enga trú á ţeirri kenningu.
Ţađ vćri kannski sniđugt ađ ég skrifađi einhvern tímann almennilegan pistil hérna um sögu Hashemíta-ćttarinnar. Ţađ er tvímćlalaust međ magnađari fjölskyldusögum á okkar tímum.
Agust skrifađi 07.02.03 21:59
Flokkun: Miđ-Austurlönd