febrúar 17, 2003

Bandaríski herinn grunnur að trúarbrögðum: Jon Frum Cargo Cult

Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Á Kyrrahafseyjalýðveldinu Vanuatu, nánar tiltekið á eyjunni Tanna tilheyrir nokkur hópur fólk svokölluðum Jon/John Frum Cargo Cult(hluti af 15% íbúanna sem tilheyra "óhefðbundnum trúarbrögðum" en á eyjunni búa 200 þús. manns) [1].
Cargo Cult er hugtak innan mannfræðinnar sem er skilgreint eitthvað á þessa leið:
Cargo cults are usually revivalist, and in some cases messianic and millenarian, movements found among certain peoples indigenous to Oceania. The word cargo refers to foreign goods possessed by Europeans; cult adherents believe that such goods belong to themselves and that, with the help of ancestral spirits, the goods can be returned to them through magico-religious means. Some cult prophets promise that the arrival of cargo will herald a period of prosperity and well-being. [2]
Upphaf Jon Frum safnaðarins er rakið til þess þegar um 300 þús. bandarískir hermenn höfðu aðsetur á Vanuatu og er hann ekki eins dæmi (en þó líklegast frægasti cargo költinn) [3]. Mannfræðingar, sem annars eru ekki að öllu leyti sammála um söfnuðinn, telja að hann megi að stórum hluta rekja til trúboðastarfs evrópskra trúboða á seinni hluta 19. aldar. Flestir eyjaskeggjar kristnuðust þá en héldu í fornar hefðir og margskonar hjátrú, t.d. að karlar klæðast sínum skrautlegu typpahólkum [4]. Sumir mannfræðingar segja í dag að Jon Frum söfnuðurinn sé of flókinn og með of djúpar rætur í menningu eyjarinnar til að teljast til cargo költa [5].
Haldið er upp á dag Jon Frum þann 15. febrúar ár hvert og fagna þá fylgismenn safnaðarins með merki Rauða krossins, sem rekja má til sjúkrakassa sem dreift var um eyjurnar á seinna stríði. Þá ganga líka um 100 fylgismenn með "riffla" á öxl sem þeir gera úr bambus á eftir tveimur öldungum sem eru klæddir í bandaríska liðþjálfabúninga. Þessir "hermenn" eru andleg hersveit innan US Army að eigin sögn. [6].
Frá sjötta áratugnum hefur bandaríski fáninn blaktað við hún í Súlfúr-flóa, til að gefa til kynna að þarna væri söfnuður Jon Frum. Myndin hér til hliðar er frá Súlfúr-flóa og er tekin af Stan Combs.

Heimildir: 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6

Þess má geta að skammt frá Súlfúr-flóa er þorpið Yaohnanen. Þar er söfnuður Phillips prins. Menn þar á bæ trúa því að Fillipus muni snúa eftir til þeirra og drottna yfir þeim, en prinsinn kom í heimsókn til eyjanna 1974. Það er aftur á móti önnur saga og verður ekki sögð hér.
Agust skrifaði 17.02.03 13:38

Flokkun: Heimspeki , Menning