febrúar 19, 2003
Egypska afstaðan
Í egypska dagblaðinu Al-Ahram birtist fyrir helgi leiðari eftir Ibrahim Nafie, ritstjóra þess. Nafie er náinn Múbarrak forseta og er leiðarinn sagður endurspegla afstöðu epyskra stjórnvalda.Al-Ahram kemur út vikulega á ensku og birtist leiðarinn þar: Courting self-destruction?
MEMRI er búin að þýða leiðarinn sem birtist í arabísku útgáfunni yfir á ensku. Reyndar birtir MEMRI aðeins hluta af leiðaranum en þeir virðast ekki alveg identical. Það er þó greinilega að þetta er sami leiðarinn að því leyti að boðskapurinn er sá sami.
The price of war is horrendous and it is paid by all. But Saddam does have the power to keep it at bay. He can stop toying with the fate of the Iraqi people, cooperate fully with the UN and give specific answers to questions concerning the whereabouts of the chemical and biological weapons Washington knows are in Baghdad's possession. The final decision rests with him.Egyptar hafa talað fyrir "útlegðarhugmyndinni", ásamt fleiri þjóðum og eru þessir leiðarar í samræmi við hana. Þarna er þó ábyrgðin sett í hendur Saddams með skýrari hætti en maður hefur séð hjá flestum öðrum arabískum leiðarahöfundum. Fókusinn er settur á hann, hann verði að víkja og forða heiminum frá stríði.
Agust skrifaði 19.02.03 13:52
Flokkun: Meðmæli , Mið-Austurlönd